Bygg
Bygg

Aðsent

Fimmtudagur 8. maí 2003 kl. 09:55

Sjálfstæðismenn í mörgum flokkum

Það mikla veldi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið á Íslandi er farið að molna. Stórveldi molna innanfrá þegar værukærð langvarandi stjórnar leiðir til þess að tengsl við íbúana rofna. Eftir situr fámenn valdaklíka sem hyglar sínum á kostnað þeirra sem ekki eru þóknanlegir. Þetta sést m.a. á fjölda framboða sjálfstæðismanna í þessu kjördæmi.Fyrst skal telja D-listann, þar er á ferðinni gamla valdaklíkan með Árna Ragnar í broddi fylkingar.
Kristján Pálsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á yfirstandandi kjörtímabili, fékk ekki að vera aðal og yfirgaf hann því sinn gamla flokk. Hann býður nú T-listann, hljómur stafsins svipar til gamla D-sins. Það er ekki mikil breyting fyrir hann og flestir stuðningsmenn hans koma úr röðum Sjálfstæðisflokksins. Hvað ætli hann geri eftir kosningar, nái hann kjöri ef gamla valdaklíkan vill semja við hann?
Þriðja framboð sjálfstæðismanna er F-listinn. Frjálslyndir hafa tilkynnt að þeir séu fyrrverandi sjálfstæðismenn. Þeir séu bara óánægðir með fiskveiðistefnuna. Á sama hátt má velta því fyrir sér hvað gerist ef Sjálfstæðisflokkurinn slakar einhverju út í kvótamálinu, ganga þeir þá ekki aftur í Sjálfstæðisflokkinn?
Fjórði listinn er pínulítið blandaður. Þar eru ekki bara óánægðir Sjálfstæðismenn heldur líka einhverjir óánægðir Framsóknarmenn og hafa þeir nægan húmor til að kalla sig „Nýtt afl“. Þeir hafa starfað fyrir og í þeim flokkum sem nú mynda ríkisstjórn. Hvað gerist ef þeir komast á þing? Munu þeir ganga aftur í sína gömlu flokka eftir einhverjar lagfæringar?

Bragð er að þá barnið finnur.
Svo erfitt er ástandið orðið meðal sjálfstæðismanna að þeir eiga erfitt með að treysta því hver er enn trúr gamla flokknum. Einn þeirra sem þó situr í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, Steinþór Jónsson hótelstjóri, sá sig tilneyddan til að vitna í síðustu Víkurfréttum. Hann skrifaði grein og tók sérstaklega fram að hann ætlaði að kjósa D-listann. Hvers vegna? Hefur hann ekki verið nógu þægur valdaklíkunni til að menn geti treyst honum? Það hefði a.m.k. ekki átt að teljast nein frétt að hann, á meðan hann er í bæjarstjórn fyrir D-listann, ætlaði að kjósa þann lista. Þetta er vitnisburður um taugaveiklunina í röðum sjálfstæðismanna um þessar mundir.

Varist eftirlíkingar.
Það er nauðsynlegt að fólk sjái í gegnum öll þessi gervi Sjálfstæðismanna.
Viljir þú koma Sjálfstæðisflokknum út úr stjórn þarft þú að varast eftirlíkingarnar. Eina raunverulega krafan um breytingu er að kjósa Samfylkinguna.

Ólafur Thordersen
Bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar
Bílakjarninn
Bílakjarninn