Silja Dögg áfram á alþingi
-Kraftmikill kvenmaður fyrir Suðurnesin þarf þinn stuðning
Silja Dögg er eini valkostur íbúa Reykjanebæjar til að tryggja sér öfluga konu á alþingi.
Hún brennur fyrir hagsmunum Suðurnesja og þykir vænt um samfélagið. Hér liggja rætur hennar en hún ólst upp í Njarðvík og býr nú í Innri Njarðvík ásamt eiginmanni og tveimur börnum.
Hún hefur starfað við allt mögulegt hér á svæðinu, m.a. sem blaðamaður hjá Víkurfréttum, kennari í Njarðvíkurskóla, lögga, þrifið flugvélar, unnið í fiski, afgreitt á barnum í Stapanum og hjá HS Orku.
Silja Dögg er kraftmikill kvenmaður úr Reykjanesbæ með reynslu af þingstörfum sem vill vinna fyrir þig og samfélagið okkar.
Silja Dögg þarf á þínum stuðning að halda. X-B
S. Hilmar Guðjónsson, verkstjóri hjá Fjölsmiðjunni á Suðurnesjum
Ólöf Sveinsdóttir, verslunarstjóri
Ingvi Þór Hákonarsson, slökkviliðs-sjúkraflutningamaður
Mikael Þór Halldórsson, tollvörður
Unnur Ýr Kristinsdóttir, svæðisfulltrúi KFUM og K á Suðurnesjum og leiðb. í Heiðarskóla.