Sigríður Jóhannesdóttir opnar kosningaskrifstofu í Glóðinni
Sigríður Jóhannesdóttir, framjóðandi í prófkjöri Samfylkingar í Suðurkjördæmi, opnaði kosningaskrifstofu sína að Hafnargötu 62, húsnæði Glóðarinnar, í gær. Fjölmenni var viðstatt opnunina, en auk þess að bjóða upp á kaffi og ýmislegt góðgæti bauð Sigríður upp á glæsilega söngdagskrá þar sem Alexandra Chernyshova, óperusöngkona, gladdi eyru viðstaddra.
Sigríður stefnir á annað eða þriðja sæti í prófkjörinu sem haldið verður þann 4. nóvember. Kosningamiðstöðin verður opin alla daga á milli kl. 16 og 18 og á milli 20 og 21.
Mynd: Meðal gesta var Lúðvík Bergvinsson sem stefnir á að leiða Samfylkinguna í Suðurkjördæmi í komandi kosningum.