Sigríður fer fram í Suðurkjördæmi
Þann 16. nóvember nk. verður prófkjör Samfylkingarinnar fyrir nýtt Suðurkjördæmi. Nú þegar hafa tveir aðilar lýst því yfir að þeir muni sækjast eftir 2.-3. sæti framboðslistans. Þetta eru Sigríður Jóhannesdóttir alþingismaður og Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar.Það er ljóst að slagurinn verður harður hjá Samfylkingarfólki og verður spennandi að sjá hverjir eiga eftir að bætast í hóp þeirra sem vilja taka sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.