Séra Jóna Kristín efst á lista Samfylkingar
Framboðsmál eru nú komin á fulla ferð og hefur Samfylkingarfélag Grindavíkurlistans riðið á vaðið og eru fyrstir til að birta framboðslista vegna komandi sveitarstjórnarkosninga.
Athygli vekur að Hörður Guðbrandsson sem verið hefur fyrsti bæjarfulltrúi Grindavíkurlistans undanfarin tvö kjörtímabil og forseti bæjarstjórnar um hríð skipar nú þriðja sæti en séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir sóknarprestur vermir fyrsta sætið.
Hörður sagði í samtali við Víkurfréttir að hann muni áfram leiða listann fram að kosningum en séra Jóna muni ekki koma af fullum þunga fyrr en eftir páska þegar fermingar eru afstaðnar.
„Við stefnum að því að halda fengnum hlut og vera þar með áfram stærsti flokkurinn með þrjá bæjarfulltrúa. Þetta verður öflugur list hjá okkur og ég er mjög bjartsýnn fyrir vorið. Málefnavinnan hefur verið góð hjá okkur og samstarfið með sjálfstæðismönnum hefur gengið mjög vel og við skilum góðu búi þannig að ég kvíði engu fyrir þessar kosningar.” Hörður vildi koma því á framfæri að séra Jóna mun fara í 4 ára leyfi frá preststörfum á hausti komanda.
6 efstu sætin skipa eftirtaldir:
1. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, sóknaprestur
2. Garðar Páll Vignisson, bæjarfulltrúi/kennari
3. Hörður Guðbrandsson, bæjarfulltrúi/verkstjóri
4. Dóróthea Jónsdóttir, skrifstofumaður
5. Sigurður Enoksson, bakari
6. Pálmar Örn Guðmundsson,íþróttafræðingur