HSS
HSS

Aðsent

“Sér ekki bara hver um sig?”
Föstudagur 21. september 2007 kl. 09:14

“Sér ekki bara hver um sig?”

- Hugleiðingar um foreldrastarf og forvarnir.

Hafa ekki allir meira en nóg að gera svo það bætist ekki við ein krafan enn um aukna þátttöku í skólastarfi og foreldrasamstarfi? Sér ekki bara hver um sig og sína? Á ég að bera ábyrgð á annara manna börnum? Þetta eru algengar hugsanir fólks þegar foreldrastarf ber á góma og ekki óréttmætar. Hins vegar vitum við að aukið foreldrasamstarf, og bætt samskipti heimila og skóla, sparar okkur tíma og orku og bætir hag barnsins, fjölskyldunnar og skólasamfélagsins þegar til lengri tíma er litið. Við erum ekki að “eyða tíma” heldur má líta á tíma og vinnuframlag hvers og eins sem mikilvæga fjárfestingu. Foreldrar og skólar eru sífellt að verða meðvitaðri um mikilvægi góðs foreldrastarfs, en aldrei er góð vísa of oft kveðin og enn er langt í land.

Barnið og bekkjarstarfið
Foreldrastarf er á ýmsum sviðum, en aðallega skiptir máli að foreldrar tali saman sín á milli, og við kennara sinna barna. Þegar upp koma verkefni sem þarf að vinna eða vandamál sem þarf að leysa, þá er ómetanlegt að þekkja hvort annað, a.m.k. í sjón, og þekkja nokkurn veginn aðstæður hvors um sig.

Bekkjarstarf er einnig mikilvægur hluti foreldrastarfs. Skiptir þá máli að foreldrar þekkist og hittist a.m.k. einu sinni á skólavetri án barna sinna til að ræða ýmis sameiginleg mál s.s. “hvernig er með afmælisgjafir? Hvað eiga veislurnar að standa lengi og hverjum á að bjóða? Er einhver skilinn útundan eða lagður í einelti innan hópsins? Trúa ykkar börn á jólasveininn? Hvað eru þau á að fá í skóinn? Er einhver í hópnum að fikta við að reykja? Fylgið þið útivistarreglunum? Er rétt að samræma okkur betur um eðlilega tölvu og gsm notkun barnanna?” Áherslurnar eru misjafnar eftir aldri barnanna, en það er mikill stuðningur í því að þekkja foreldra vina barnsins þíns og aðstæður hvers og eins.

Ávinningur og hindranir samstarfs
Gott samstarf heimila og skóla leiðir alltaf til betra skólastarfs. Jákvætt viðhorf foreldra leiðir beint til jákvæðari nemenda, betri vinnufriðar og bættum skilum á heimavinnu. Þetta hefur svo aftur jákvæð áhrif inn á heimilið og fjölskyldulífið. Það eru hins vegar ýmsir þættir sem hindra gott samstarf, svo sem misskilningur, ótti við gagnrýni, óljós ábyrgð hvers og eins, og ekki síst mikið vinnuálag, streita og þreyta foreldra og kennara. Of algengt er að, á meðan allt gengur vel, talar enginn saman og hver er í sínu horni. En það reynir á samskiptin t.d. þegar vandamál koma upp.

Við erum heldur ekki alin upp í að vera í miklum samskiptum við kennara eða skólann sem stofnun. Hvorki sem beinir þátttakendur í bekkjarstarfi eða sem umsagnaðaraðili að skólanámsskrá eða innihaldi skólahalds eins og nú er ætlast til af foreldraráðum. “Sér ekki bara hver um sig?” er mottó okkar Íslendinga oft á tíðum. “Eigum við að skipta okkur af þessu?” Við þorum ekki í skólastofuna, erum jafnvel hrædd við viðbrögð barna okkar og viljum ekki trufla. “Best að vera ekki að hringja núna, það er ekki viðtalstími og ég trufla örugglega. Ég hringi bara eftir viku þegar það er viðtalstími....enda er þetta svo sem ekkert mjög mikilvægt......” sem gleymist svo í önnum dagsins og enginn hefur samband fyrr en kannski leysa þarf einhver vandamál.

Sumir foreldrar segjast upplifa óöryggi og tortryggni kennara þegar kíkt er í kennslustund, og koma því ekki aftur þrátt fyrir að yfirlýst stefna skólans sé sú foreldrum sé það velkomið.

Svo mætti fleiri dæmi telja sem hindra gott og árangursríkt samstarf. Rannsóknir sýna það að viðhorf skólastjórnenda skiptir höfuðmáli þegar skapa á gott samstarf heimila og skóla. Nauðsynlegt er að stjórnendur skólans gefi skýr skilaboð, til foreldra jafnt sem starfsmanna, því eftir höfðinu dansa limirnir.

Foreldrar tölum saman
Foreldrar eru vannýtt auðlind í skólastarfi. Við höfum alls konar hæfileika sem hægt væri að nýta, tölum t.d. ýmis tungumál, kunnum ýmsar listir eða íþróttir, höfum tengsl við félög og vinnustaði sem gætu nýst við vettvangsferðir eða ýmis konar fræðslu. Samkvæmt reynslunni eru foreldrar samt ólíklegir til að taka frumkvæðið, en verða þó mjög stoltir og hreyknir ef þeir fá ábyrgð og ákveðið hlutverk til að sinna, í stað þess að vera gestir eða passívir áhorfendur. Mín reynsla og annara er sú, að þeir sem taka þátt í foreldrastarfi innan skólanna verði mun jákvæðari í garð skólans en áður. Þeir fá aukna innsýn í skólastarfið og styrkjast sem foreldrar í sínu uppeldishlutverki.

Það sem skiptir þó höfuðmáli er að foreldrar tali saman. Tenglsanet foreldra hefur ótrúlega mikið forvarnargildi, langt út fyrir netið sjálft og foreldrana sem það skipa. Nú þegar forvarnavika í Reykjanesbæ stendur sem hæst þá er við hæfi að benda á þá sígildu staðreynd að foreldrar eru besta forvörnin.

Ég bendi foreldrum og skólum á ýmis hjálpargögn og fræðslu um foreldrastarf og samstarf heimila og skóla á heimasíðu Heimilis og skóla www.heimiliogskoli.is og FFGÍR www.ffgir.is

f.h. FFGÍR-Foreldrafélög og foreldraráð grunnskólanna í Reykjanesbæ

Ingibjörg Ólafsdóttir verkefnastjóri
[email protected]
Bílakjarninn
Bílakjarninn