Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

SAR heldur atvinnufund í Grindavík á fimmtudag
Miðvikudagur 24. nóvember 2010 kl. 21:39

SAR heldur atvinnufund í Grindavík á fimmtudag

Fimmtudaginn 25. nóvember, k.l. 12-13, verður hádegisfundur Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi í Salthúsinu. Á fundinum verður SAR kynnt stuttlega, en áhersla lögð á að ræða atvinnumál Grindvíkinga og þann stuðning sem SAR getur veitt í því efni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

SAR mun halda fundi í öllum sveitafélögunum fyrir áramót og því mikilvægt að staðarmenn mæti á fundina í spjall um atvinnumál.

Áætlanir SAR eru að halda svona hádegisverðarfundi mánaðarlega og fara milli sveitarfélaga. Þannig verður einn svona fundur fimmta hvern mánuð í hverju sveitarfélagi. Með svona fundum myndast góð tengsl á milli aðila í atvinnulífinu og skoðana- og upplýsingarskipti verða betri.

Í öllum tilfellum verða fundir settir stundvíslega klukkan 12:00 og slitið klukkan 12:55, svo fólk komist til vinnu aftur.

Dagskráin SAR funda fram að áramótum er þessi:

Fimmtudaginn 25 nóvember, Grindavík.

Fimmtudaginn 02 desember, Vogar

Fimmtudaginn 09 desember, Sandgerði

Fimmtudaginn 16 desember, Garður

Fjölmennum í Salthúsið á fimmtudaginn kl. 12!

Nánari upplýsingar gefur

Gunnar Ellert Geirsson, framkvæmdastjóri SAR

GSM: 697 7014