Sannleikurinn er sagna bestur og má alls ekki gleymast
Ágætu Garðbúar!
Mig langar til þess að minna ykkur á nokkra frekar neikvæða atburði sem áttu sér því miður stað hér í okkar annars ágæta byggðarlagi Garðinum á þessu kjörtímabili sem nú er að renna sitt skeið á enda. Þetta eru svo sannarlega atburðir sem okkur ber persónuleg skylda til þess að hafa í fersku minni þegar við göngum til bæjarstjórnarkosninga þann 31 maí næstkomandi.
Það var nefnilega gerð mjög svo ódrengileg og óverðskulduð árás á eina af okkar mikilvægustu og virtustu stofnun hér í Sveitafélaginu Garði, nefnilega skólann okkar og starfsfólk hans. Fyrir þeirri árás fór núverandi meirihluti D – listans og var hún gerð undir því fororði að uppræta meint einelti í skólanum okkar og aðra óværu og sáu þá árásarmennirnir andskotann í hverju horni og nú skyldi höggvið á báðar hendur sem aldrei fyrr og meinið upprætt. Fremstur í flokki fyrir eineltisárásunum fór þáverandi bæjarstjóri og sveiflaði hann atgeir sínum allt um kring og skeytti engu um hver fyrir varð og lá særður í valnum eftir að ósekju. Þar var meðal annars hrakinn á burt þáverandi skólastjóri og mannorð hanns fótum troðið og skólinn okkar sem stofnun og starfsfólk lítillækkað opinberlega á landsvísu sem og orðstír Sveitafélagsins okkar sem ekki þótti viðbjargandi í umræðum almennings. Ég hef heimildir fyrir því frá fyrstu hendi að þessar óverðskulduðu árásir á skólann okkar og starfsfólk hans hafi verið rétt að hefjast og margt verkið verið óunnið þegar forsprakkinn í antieineltisherferðinni þurfti frá að hverfa þar sem starfskrafta hans var ekki lengur óskað í Sveitarfélaginu Garði. Ég er persónulega alveg sannfærður um það að aldrei í sögu íslenska lýðveldisins hefur þjóðin orðið vitni að öðrum eins skrípaleik og hér var því miður settur á svið í svokallaðri baráttu gegn meintu einelti og annari óværu í Gerðarskóla. Þar virðist kjörorðið hafa verið að með illu skuli illt út reka því að ef þessar aðfarir eru ekki einelti þá er einelti ekki til.
Þess má að lokum geta í framhjá hlaupi að forsprakkinn að þessum dapurlegu og óverðskulduðu árásum á skólann okkar og samfélagið okkar hér í Garðinum skipar nú heiðurssæti í framboði D – listans til bæjarstjórnarkosninga 31. 05. 2014.
Að lokum vil ég ítreka það ágætu Garðbúar að þetta eru atburðir sem því miður hafa skaðað orðstír okkar annars ágæta samfélags hér í Garðinum og er mikið verk óunnið í því að bæta okkur öllum þann skaða sem þar var unnin. Við skulum muna það öll sem eitt þegar við göngum til bæjarstjórnar kosninga laugardaginn 31. 05. 2014 að slíkir atburðir mega aldrei gerast aftur.
Ég óska Garbúum öllum farsældar og gleðilegs sumars. Verjum atkvæði okkar af ábyrgð og kostgæfni.
Ástþór Bjarni Sigurðsson.
Meintur Garðbúi.