Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Samvinna
Laugardagur 17. september 2011 kl. 11:47

Samvinna

Samvinna er hugsjón um samvinnu einstaklinga og samhjálp. Samvinna er því andstæða skefjulausrar sérhyggju. Áherslan er samtakamáttur einstaklinga þar sem maðurinn situr í öndvegi en fjármagn gert að þjóni þess. Samvinnufélög á íslandi hafa að mestu verið neytendafélög eða í framleiðslugeira. Víða erlendis eru þau starfandi á öðrum sviðum eins og heilbrigðisþjónustu, barnagæslu, öldrunarþjónustu, útfararþjónustu, fjármálaþjónustu, og sérfræði- og ráðgjafaþjónustu svo dæmi sé tekið.

Í USA til dæmis hefur samvinnurekstur dafnað vel enda viðbót sem tryggir frekar samkeppni við stórfyrirtækin sem með fákeppni eða einokunaraðstöðu hafa hreiðrað um sig með græðgina að leiðarljósi. Í bandaríkjunum eru tugþúsundir samvinnufélaga með yfir 100 milljónir viðskiptavina og nokkur þeirra eru meðal 500 stærstu fyrirtækja landsins. Tugir þúsunda barna njóta þjónustu leikskóla sem þar eru reknir með samvinnuformi. Hugsuðurinn og uppfinningamaðurinn Benjamín Franklín var einn af stofnendum samvinnuhreyfingarinnar í USA.

Hlut sinn í samvinnufyrirtæki eiga einstaklingarnir fyrir hönd nærsamfélagsins og meginmarkmiðið með starfseminni er ekki hámörkun hagnaðar heldur að bjóða bestu mögulegu þjónustu á sem lægstu verði til hagsbóta fyrir félagsmenn.

Tíminn vinnur með félögum sem rekin eru með samvinnu að leiðarljósi enda fákeppni oft vandamál í örsmáum hagkerfum. Það er því þörf fyrir samvinnustarf sem mótvægi og til að treysta nærsamfélagið. Samvinna er tæki gegn valdþjöppun og fyrir lýðræði stuðlar hún að samfélagslegri samkennd, trausti og samfélagslegri ábyrgð.

Með sama hætti og í samvinnuhreyfingu byggir félagsgeirinn eða óarðsækni geirinn ekki á aðild fjárfesta heldur á félagslegri þátttöku. Óarðsækni, non profit, byggir á félagslegum gildum sem skipta miklu máli fyrir almenna velferð og framfarir.

Á Íslandi eru skráð í kringum 12.000 samtök og áhugafélög. Veiðifélög eru um 158 í landinu. Hér á landi eru í kringum 68 sjálfseignarstofnanir, rúmlega 80 lífeyrissjóðir. Þá má nefna íþróttafélög, björgunarsveitir, stéttarfélög, líknarfélög, trúfélög, lista-menningar- og fræðslustofnanir, dvalarheimili, velferðasamtök, stjórnmálafélög og áhugamannasamtök og hagsmunasamtök. Aðilar vinnumarkaðar og stjórnmálamenn taka jafnan höndum saman og stofna svæðisbundin þróunarfélög og gera þróunaráætlanir byggðar á slíkri samvinnu. Samvinnufélögin, sparisjóðirnir og lífeyrissjóðir og fleiri rekstrarform bera svipuð einkenni.

Treystum samvinnu á sem flestum sviðum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Skúli Skúlason
Formaður Kaupfélags Suðurnesja.