Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi halda atvinnufund í Garði
Hádegisfundur Samtaka Atvinnurekenda á Reykjanesi verður haldinn í samkomuhúsinu í Garði fimmtudaginn 27. janúar, kl. 12-13.
Á fundinum verður SAR kynnt stuttlega, en áhersla lögð á að ræða atvinnumál Reykjaness og þann stuðning sem SAR getur veitt í þeim efnum.
SAR mun halda fundi í öllum sveitafélögunum fyrir áramót og því mikilvægt að staðarmenn mæti á fundina í spjall um atvinnumál.
Boðið verður upp á súpu, sem framreidd verður af listamönnum sem staðið hafa að sýningunni Ferskir vindar í garði, gegn vægu verði.
Áætlanir SAR eru að halda svona hádegisverðarfundi mánaðarlega og fara milli sveitarfélaga. Þannig verður einn svona fundur fimmta hvern mánuð í hverju sveitarfélagi. Með svona fundum myndast góð tengsl á milli aðila í atvinnulífinu og skoðana- og upplýsingaskipti verða betri.
Í öllum tilfellum verða fundir settir stundvíslega klukkan 12:00 og slitið klukkan 12:55, svo fólk komist til vinnu aftur.
Fjölmennum í samkomuhúsið í Garði á fimmtudag kl. 12!