Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Samkeppnishæfur fjölskyldubær
Föstudagur 18. febrúar 2022 kl. 13:36

Samkeppnishæfur fjölskyldubær

Í Reykjanesbæ líkt og í öðrum sveitafélögum ber okkur skylda að sinna lögbundinni lágmarksþjónustu við íbúa. Forgangsröðun verkefna í þágu grunnþjónustunnar er því eitt mikilvægasta verkefni sveitafélaga og uppbygging nýrra leikskóla á að vera ofarlega á þeim lista. Það þarf að tryggja börnum öruggt leikskólapláss, ekki bara börnum sem náð hafa tveggja ára aldri, heldur þarf að tryggja börnum dagvistun strax að loknu fæðingarorlofi foreldra.

Þetta er því miður ekki staðan í okkar góða bæjarfélagi. Samkvæmt skýrslu fræðsluráðs Reykjanesbæjar í júní 2021 var hlutfall átján mánaða barna með leikskólapláss aðeins 19%. Þetta eru sláandi tölur og það þarf að gera betur. Miklu betur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Það þarf sýn og það þarf plan. Nýr leikskóli er áformaður í Hlíðarhverfinu og þar þarf að vinna hratt og örugglega. Þar vil ég líka sjá nýjungar í framkvæmd og ungbarnadeild til að mæta þeirri gríðarlegu þörf sem er fyrir dagvistunarpláss fyrir yngstu börnin. Það er þó ekki nóg eitt og sér, og miðað við vöxtinn í bæjarfélaginu þarf að taka rösklega til hendinni í þessum málum og leggja drög að fleiri leikskólum og/eða stækkun þeirra leikskóla sem eru starfandi í dag.

Hugum að ímynd bæjarins – verum stolt af bænum okkar

Nýlega var Stapaskóli tekinn í notkun í Innri-Njarðvík og kórónar hann hið glæsilega hverfi sem hefur risið hratt síðustu árin. Skólinn er framúrskarandi, leiðandi á sínu sviði og fyrirmynd fyrir aðra skóla sem eiga eftir að rísa á Íslandi. Lítið hefur hinsvegar heyrst af þessum glæsilega skóla þegar rýnt er í aðra miðla en bæjarmiðilinn. Með einfaldri Google-leit að „Stapaskóli“ er til að mynda ekki að finna eina einustu frétt í neinum af stærstu fréttamiðlum landsins.

Reykjanesbær er í samkeppni. Samkeppni við önnur sveitarfélög um íbúa, fyrirtæki og athygli frá hinu opinbera. Við eigum að vera stolt af bænum okkar, tala hann upp og láta alla vita af því að hér er gott að búa. Nýtum styrkleikana okkar og byggjum upp samfélag sem fólk sækist í, þar sem fólk vill starfa, ala upp börnin sín og verja frítíma sínum.

Ég flutti til Reykjanesbæjar fyrir rúmum áratug. Sem aðfluttur íbúi hef ég í ófá skipti þurft að svara fyrir það hvernig mér hefði eiginlega getað dottið það í hug að koma hingað úr Reykjavík. Og þá er ég fljót að nefna alla þá fjölmörgu kosti við það að búa í Reykjanesbæ.

Við megum ekki láta slæmar fréttir um bæinn okkar kaffæra þær góðu – hér er ótrúlega gott að búa. Verum stolt, höfum hátt og gerum bæinn okkar ennþá betri. Mig langar að taka þátt í því og þess vegna bið ég um stuðning ykkar í 4. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þann 26. febrúar.

Gígja Sigríður Guðjónsdóttir,
frambjóðandi í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.