Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Samfylking fagnar heimild vegna ECA
Miðvikudagur 8. september 2010 kl. 12:45

Samfylking fagnar heimild vegna ECA


Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ fagnar því að Kristján L. Möller fráfarandi samgönguráðherra hafi veitt Flugmálastjórn heimild til að hefja undirbúning og afla upplýsinga um þotuviðhaldasverkefni ECA á Keflavíkurflugvelli.

Áætluð starfsemi ECA byggist á sömu forsendu og fjöldi íslenskra fyrirtækja sem til margra ára veittu fjölda íslendinga störf á Keflavíkurflugvell. Starfsemi ECA felst í rekstri og viðhaldi vopnlausra flugvéla sem notaðar verða til æfinga erlendis og flogið af
atvinnuflugmönnum.

Standa vonir til þessað fyrirtækið muni skapa fjöldan allan af vellaunuðum hátæknistörfum á Suðurnesjum þar sem atvinnuleysið er hvað mest auk þess að störf skapist við undirbúning og uppbyggingu.

Stjórnin ítrekar fyrri afstöðu sína þess efnis að staðan í atvinnumálum á Suðurnesjum kalli á að stjórnvöld kanni allar þær hugmyndir sem fram koma um atvinnusköpun til fulls á fordómalausan hátt áður en afstaða er tekin til þeirra.

Fréttatilkynning frá stjórn Samfylkingar í Reykjanesbæ.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024