Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Aðsent

Sameining sveitarfélaga
Fimmtudagur 15. september 2005 kl. 11:03

Sameining sveitarfélaga

-að frumkvæði sveitarstjórnarmanna, í samráði við sveitarstjórnarmenn og í þágu íbúa-

Sem kunnugt er munu íbúar fjölmargra sveitarfélaga ganga að kjörborðinu þann 8. október næstkomandi og kjósa um sameiningu sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslur um sameiningu sveitarfélaga hafa verið algengar hér á landi síðastliðin ár og hafa íbúar sumra sveitarfélaga allnokkra reynslu af sameiningarferlum og hafa kosið oft. Flestir íbúar þekkja þó minna til sameiningarkosninga og því eðlilegt að skýra í fáum orðum hvernig það kom til að íbúarnir fá nú tækifæri til að kjósa og hvernig sú atkvæðagreiðsla fer fram.

Hvaðan koma þessar tillögur?
Þær sameiningartillögur sem nú verður kosið um eru þannig til komnar að landsþing og fulltrúaráð Sambands íslenskra sveitarfélaga hafði ályktað um nauðsyn þess að sameina sveitarfélög í heildstæð atvinnu- og þjónustusvæði. Þegar nýr félagsmálaráðherra kom til starfa árið 2003 óskaði stjórn sambandsins eftir samstarfi við félagsmálaráðuneytið um sérstakt átak til að sameina sveitarfélög. Ráðherrann varð við þessari ósk og skipaði sérstaka verkefnisstjórn og sameiningarnefnd til að vinna að verkefninu. Undirritaður var síðar ráðinn til að starfa með nefndunum.

Í verkefnisstjórninni sitja formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og tveir þingmenn og er annar þeirra formaður. Í sameiningarnefnd sitja þrír þingmenn, þrír sveitarstjórnarmenn og einn fulltrúi félagsmálaráðuneytisins, sem er formaður nefndarinnar. Bæði verkefnisstjórnin og sameiningarnefndin hafa átt umfangsmikið samráð við sveitarstjórnarmenn síðustu tvö ár um verkefnið og allar sameiningartillögurnar unnar í samráði við sveitarstjórnarmenn á viðkomandi landsvæði. Tillögurnar, sem voru kynntar í mars síðastliðnum, eru ennfremur byggðar á stefnu sambands íslenskra sveitarfélaga að sveitarfélög myndi heildstæð atvinnu- og þjónustusvæði. Verkefnið er m.ö.o. unnið af sveitarstjórnarmönnum og þingmönnum í samráði við sveitarstjórnarmenn og að frumkvæði sveitarstjórnarmanna.

Hvernig fara kosningarnar fram?
Sameiningarnefnd kynnti tillögur sínar í mars síðastliðnum. Þær tillögur eru bindandi og skulu íbúar fá tækifæri til að greiða atkvæði um þær. Eftir að sameiningartillaga er fram komin skal hver sveitarstjórn sem tillaga varðar skipa tvo fulltrúa í sérstaka samstarfsnefnd. Sú skylda hvílir á þeirri nefnd, skv. lögum, að undirbúa sameiningarkosninguna og kynna tillöguna fyrir íbúum svo þeir geti tekið upplýsta afstöðu.

Um sameiningarkosningar er fjallað í sveitarstjórnarlögum, og fara þær þannig fram að kosið er í hverju sveitarfélagi sem viðkomandi tillaga varðar og verður ekkert sveitarfélag sameinað öðru nema meirihluti kjósenda í viðkomandi sveitarfélagi lýsi sig samþykka sameiningartillögunni.

Það eru m.ö.o. íbúarnir sem hafa lokaorðið og mikilvægt að þeir kynni sér málið vel og taki upplýsta ákvörðun. Telji íbúar skorta á upplýsingagjöf er eðlilegt að þeir óski eftir þeim hjá sveitarstjórnarmönnum í viðkomandi sveitarfélagi.

Ef tillaga sameiningarnefndar hlýtur ekki samþykki íbúa í öllum hlutaðeigandi sveitarfélögum, en meirihluti þeirra sem afstöðu taka á öllu svæðinu lýsir sig fylgjandi, skal greiða atkvæði að nýju innan sex vikna í sveitarfélögum sem tillaga var felld. Skilyrði er að tillagan hafi verið samþykkt í a.m.k. tveimur sveitarfélögum.

Þetta ákvæði er nýtt, en markmið þess er að gefa íbúum annað tækifæri til að kjósa, þegar þeir hafa séð vilja nágrannanna til sameiningar. Ákveðnar vísbendingar eru um að íbúar hafi fellt sameiningartillögur vegna óvissu um afstöðu nágrannanna. Þegar sameiningarvilji þeirra liggur fyrir, hafi þeir síðan skipt um skoðun og viljað samþykkja sameiningartillöguna.

Að loknum atkvæðagreiðslum telst sameining samþykkt ef sameiningartillagan hlýtur samþykki meirihluta íbúa sem afstöðu taka í öllum sveitarfélögum.

Felli íbúar sameiningartillöguna, verður þeirra sveitarfélag ekki sameinað öðrum. Sveitarstjórnum þeirra sveitarfélaga sem samþykktu sameiningu er heimilt að ákveða sameiningu þeirra sveitarfélaga sem samþykktu, að því gefnu að um a.m.k. 2/3 sveitarfélaganna sé að ræða og í þeim búi a.m.k. 2/3 íbúanna á því svæði sem sameiningartillagan nær til.

Eins og ég hef rakið í þessari grein er það sameiningarferli sem nú stendur langt frá því að vera miðstýrt úr félagsmálaráðuneytinu. Í raun er það eins lýðræðislegt og nokkur kostur er. Verkefnið er unnið að frumkvæði sveitarstjórnarmanna og í miklu samráði við sveitarstjórnarmenn í þeim sveitarfélögum sem tillögurnar ná yfir. Að lokum eru það íbúarnir sem ákveða hvort þeirra sveitarfélag verður sameinað öðrum.

Hvergi annars staðar í heiminum eru breytingar á stjórnsýslumörkum, s.s. sameining sveitarfélaga, unnar í eins nánu samráði við íbúa Sem dæmi má nefna að danska Folketinget ákvað fyrir skemmstu að árið 2007 skuli sveitarfélögum í Danmörku fækkað úr 271 í 98. Aðkoma íbúa að því ferli var hverfandi.

Róbert Ragnarsson, verkefnisstjóri átaks um eflingu sveitarstjórnarstigsins

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024