Sameining HS og RH öllum til góðs

Góðir Suðurnesjamenn. Ég vil fyrir hönd stjórnar Hitaveitu Suðurnesja byrja á því að þakka ykkur fyrir það ár sem er að líða og óska ykkur öllum gleðilegs árs.
Hitaveita Suðurnesja sem er óskabarn okkar Suðurnesjamanna, er á miklum tímamótum um þessi áramót. Sennilega hefur stjórn HS og eigendur ekki staðið frammi fyrir stærri ákvörðunum um tillögu um framtíðarmótun HS, þ.e.a.s. að HS verði breytt í hlutafélag og að Rafveita Hafnarfjarðar sameinist HS.
Ég tel að með þessum hugmyndum, séum við að marka framtíðarsýn til góðs fyrir HS og sýna frumkvæði um breytt rekstrarform orkufyrirtækja á Íslandi. Um leið styrkist rekstur HS og munu bætast við um 30 þús. notendur á raforku og lækka um leið raforkuverð til Hafnfirðinga sem hefur verið 18% hærra en hjá okkur. Mun það taka u.þ.b. tvö ár að breyta því til jafns við okkar verð. Þessi breyting hefur ekki verðhækkun í för með sér til Suðurnesjabúa, og mun það takast með meiri hagkvæmni í rekstri og gera HS að stærri rekstrareiningu.
Ef við lítum til framtíðar sjáum við væntanlega annað orkuver rísa á Trölladyngjusvæðinu sem mun verða stærra og öflugra en orkuverið í Svartsengi ef vel tekst til. Okar virðist vera næg á þessu svæði samkvæmt mælingum. Væntingar um þessa möguleika munu aukast verulega eftir þennan samruna við Rafveitu Hafnarfjarðar og munu miklar framkvæmdir eiga sér stað í Vatnsleysustrandarhreppi í tengslum við þessar væntingar.
Ég vil nota tækifærið og þakka eigendum HS fyrir þær góðu viðtökur sem þessar tillögur frá stjórn HS, hlutu hjá þeim um þessar breytingar á rekstrarformi HS og samruna við RH. Stjórn HS mun halda áfram að marka stefnu til framtíðar, til hagsældar fyrir eigendur og notendur. Einnig vil ég þakka þeim framsýnu sveitarstjórnarmönnum sem höfðu kjark og þor, til að byggja HS upp á sínum tíma. Það hefur skilað sér til okkar Suðurnesjamanna, með mikilli hagsæld og mörgum framkvæmdum sem hafa fæðst, s.s. Bláa Lónið o.fl. Mörg öflug og stór fyrirtæki hafa sest hér að vegn hagkvæms orkuverðs til þeirra.
Suðurnesjamenn, stöndum saman um að efla og styrkja HS til framtíðar og eflum með því atvinnutækifæri afkomenda okkar og látum ekki þröngsýn sjónarmið stöðva þá þróun.
Ingólfur Bárðarson,
stjórnarformaður Hitaveitu Suðurnesja