Sagnakvöld í Byggðasafninu á Garðskaga

Saga svæðisins er mjög áhugaverð. Leiðsögumenn Reykjaness kynntu sér söguna og fylltust miklum áhuga vegna þess hversu athyglisverð hún er og vilja miðla hluta hennar áfram til íbúa og annarra gesta.
Sigrún sýnir myndir og segir frá merkum minjum, letursteinum sem sagnir eru um að m.a. hafi verið á leiði fornmanna og séu allt frá fyrstu öldum búsetu. Nokkrir þeirra hafa fundist í Garði í seinni tíð og eru á vettvangi, aðrir eru í geymslu á Þjóðminjasafni og nokkrir eru enn ófundnir.
Iða Brá segir frá skipsströndum sem orðið hafa í flösinni, skerjagarðinum sem umlykur strandlengjuna við Garð en mörg skip hafa strandað þar og víða má sjá minjar af þeim.
Hildur segir sögur af sr. Sigurði B. Sívertsen sem var prestur á Útskálum í um hálfa öld frá 1831–1887 og skrifaði m.a. Suðurnesjaánnál sem er með merkustu heimildum af mönnum og málefnum fyrri tíðar.
Á milli atriða verður fjöldasöngur. Heitt verður á könnunni og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. www.leidsogumenn.is