Sækist eftir 3. sæti
	Arna Ír Gunnarsdóttir, félagsráðgjafi, gefur kost á sér í 3.sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem fram fer 16.-17. nóvember nk.
	
	Arna Ír er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Sveitarfélaginu Árborg og situr þar m.a. í fræðslunefnd auk þess að hafa gengt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna.
	
	Arna Ír er félagsráðgjafi að mennt og hefur starfað á ýmsum sviðum félagsþjónustu. Í dag starfar hún við félagsráðgjöf í Velferðarþjónustu Árnesþings og þjónustusvæði Suðurlands í málefnum fatlaðra.
	
	Arna Ír er gift Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt og eiga þau 3 syni.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				