Ross, Ásgeir og Júlíus – er þetta rétt?
Í grein Morgunblaðsins í dag er gert lítið úr vilja og ásetningi HS Orku til uppbyggingar atvinnulífs á heimaslóðum. Mér finnst þessi lesning með hreinum ólíkindum og neita að trúa henni.
Á fundum með SAR hafa forsvarsmenn HS Orku margsinnis lýst yfir einlægum vilja til að greiða götu framkvæmda við álver í Helguvík. Samtök Atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) geta ekki setið undir umræðu af þessu tagi og krefjast þess að hið sanna komi fram. Íbúar svæðisins, sem skópu þetta fyrirtæki og tryggja því stóran hluta tekna sinna, verða að fá að heyra hið sanna umbúðalaust!
Hagsmunir þjóðarbúsins, fjölskyldna og fyrirtækja á Suðurnesjum af framgangi framkvæmda við álver í Helguvík eru gríðarlegir.Eigi nokkuð í grein Agnesar Bragadóttur við rök að styðjast er ástæða til að skoða þrautagöngu þessa verkefnis í öðru ljósi og leita nýrra leiða og lausna.
Fyrir hönd SAR langar mig að byrja á því að kalla eftir viðbrögðum forsvarsmanna HS Orku við þessari grein því á HS Orku hafa Suðurnesjamenn treyst í því erfiða verkefni sem endurreisn atvinnulífs Suðurnesjamanna er!
Ross Beaty, Ásgeir Margeirsson og Júlíus Jónsson; nú verðið þið að taka af allan vafa um ykkar einlæga ásetning. Eru lýsingar Agnesar af framgöngu HS Orku réttar?
F.h. Samtaka Atvinnurekenda á Reykjanesi,
Gunnar Ellert Geirsson
Framkvæmdastjóri.