Rjúpnaveiðin hefst í dag - skyttur fari varlega
Eins og kunnugt er hefst rjúpnaveiðitímabilið í dag, föstudaginn 29. október og stendur til sunnudagsins 5. desember og eru veiðar heimilar föstudaga, laugardaga og sunnudaga á tímabilinu. Undanfarin ár hafa björgunarsveitir ítrekað verið kallaðar út til að leita að rjúpnaveiðimönnum. Slysavarnafélagið Landsbjörg vekja athygli á að veðurspá helgarinnar er afleit, sérstaklega á Austur- og Suðausturlandi og vill því koma á framfæri nokkrum góðum ferðareglum sem rétt er að hafa í huga áður en lagt er af stað í veiðiferðina.
Almennar umgegnisreglur við skotvopn
* Geymið byssu og skot á læstum stöðum
* Ekki aka á veiðistað með byssuna hlaðna
* Hafið öryggið ávallt á þegar gengið er með byssu
Ferðareglur rjúpnaskyttunnar
* Fylgist með veðurspá
* Gerið ferðaáætlun og skiljið hana eftir hjá aðstandendum
* Kynnið ykkur vel það svæði sem ferðast á um
* Hafið með góðan hlífðarfatnað
* Takið með sjúkragögn og neyðarfæði
* Fjarskipti þurfa að vera í lagi, gps, kort, áttaviti og talstöð/sími og kunnátta verður að vera til staðar til að nota þau
* Verið viss um að farartækið sé í góðu ásigkomulagi áður en lagt er af stað
* Ferðist ekki einbíla
* Takið með grunnviðgerðardót fyrir farartækið og festið allan farangur
* Munið að akstur og áfengi fer ekki saman
* Ef ferðast er í bíl spennið beltin og notið hjálma, brynjur og annan hlífðarfatnað ef farið er um á vélsleða eða fjórhjóli
* Betra er að snúa við í tíma heldur en að koma sér í ógöngur