Reykjanesbær hefur ætíð verið góður bær

Þeir Sjálfstæðismenn forðast eins og heitan eld að ræða efnisatriði þegar rætt er um hinn ofboðslega leigugjald, sem Fasteign h/f innheimtir af eignunum.
Gaman væri að fá að sjá leigugjaldið sem bærinn þarf að greiða fyrir félagsheimilið Stapa, sem nýverið var selt á 121 milljón en brunabótamatsverð Stapans er 178 milljónir og lóðin ofan við Stapann sem nú er byrjað að byggja á sennilega um 40 milljóna virði ef miðað er við, söluverð lóða á Nikkelsvæðinu, og fá þó færri en vilja lóðir þar til bygginga.Þessi sölugjörningur allur er slíkur að það "er nú varla til að fara með í aðra hreppa" eins og stundum er sagt.
Títtnefndur Kristján ræðir um heilindi og sannleiksást minnihlutafólksins í bæjarstjórn, ja "sá getur nú trútt um talað" í þeim efnum, hans eigin flokksmenn neyddust til að fjarlægja hann af framboðslista sínum í Suðurkjördæmi "vegna vanheilinda hans"eins og einn samherja hans orðaði það, annar kallaði hann "Ljósálf vegna þess að reyndi óheiðarlega að eigna sér lýsingu Reykjanesbrautarinnar", þetta eru nú aðeins orð samherja Kristjáns en ekki andstæðinga.
Þá talar Kristján um blessað lýðræðið og flótta minnihlutans, og "ekki er nú komið að tómum kofanum þar".Hann sjálfur kaus að fara í sérframboð í síðustu alþingiskosningum vegna þess að hann varð undir í lýðræðislegum kosningum innan Sjálfstæðisflokksins.
Kristján Pálsson sigldi þá fram undir merkjum T-listans hvað sá bókstafur stóð fyrir veit ég ekki fyri víst en varla var það fyrir " trúnað og traust".?
Að lokum má geta þess að hann er nú kominn heim í heiðardalinn á ný og hefur víst gleymt öllum fyrri væringum, væntanlega með þá von í brjósti að fá enn á ný eitthvern mola sem fellur til, kannski lóðir, kannski embætti? Eitt er þó næsta víst að þingsæti hjá Sjálfstæðismönnum fær hann seint eða aldrei.
Hilmar Hafsteinsson
070946-2709