Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Reykjanes gönguferðirnar að hefjast
Þriðjudagur 1. júní 2010 kl. 10:25

Reykjanes gönguferðirnar að hefjast


HS Orka hf (HS), Geysir Green Energy (GGE) og Norðurál kynna göngudagskrá sem verður í boði í sumar um Reykjanesskagann í samstarfi við SBK, Víkurfréttir, Björgunarsveitina Suðurnes, Bláa Lónið og Rannveigu Garðarsdóttur leiðsögumann.


Fyrsta gönguferðin er á morgun, miðvikudaginn 2. júní en þá verður gengið frá Reykjanesvita yfir Stampahraun með ströndinni norður í Stóru-Sandvík. Gangan tekur um 2 – 3 klst.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Þetta er þriðja árið sem fyrirtækin bjóða upp á slíka göngudagskrá.  Nú eru það alls 10 gönguferðir um Reykjanesið á tímabilinu júní – ágúst 2010, allar undir leiðsögn Rannveigar.  Að þessu sinni var einnig ákveðið að bjóða uppá eina hjólaferð.  Jarðfræðingar HS koma að gönguferðum með sértækari fróðleik.
Upphaf verkefnisins er að Rannveig Garðarsdóttir leitaði til HS með þá hugmynd að fá fyrirtækið til að standa með  sér að þessu metnaðarfulla verkefni.   Ákveðið  var að leita til samstarfsaðila með sömu stefnu í  umhverfismálum og var GGE fengin til liðs við verkefnið og síðar Norðurál.  SBK mun sjá um akstur á göngufólki til og frá göngustað og Víkurfréttir mun fjalla um hverja gönguferð ásamt því að Björgunarsveitin Suðurnes leggur til liðsmann úr sveitinni í allar gönguferðirnar með viðeigandi öryggisbúnað.  Í síðustu göngu sumarsins mun Bláa Lónið bjóða göngufólki í Bláa Lónið eftir göngu.


Rannveig hefur mikla reynslu af gönguferðum um Reykjanesskagann.  Hún stóð m.a. fyrir gönguhóp sem gekk vikulega um svæðið um sumartímann árin 2001 – 2008.  Auk þess hefur hún ferðast með  fjölmarga hópa um Reykjanesskagann og allt landið sem leiðsögumaður.  Hún hefur verið í forsvari Leiðsögumanna Reykjaness.


Reykjanesskagi er kjörlendi göngufólks og þar geta allir fundið gönguferðir við  sitt hæfi.  Náttúran er mögnuð, láglendi mikið, virkar gosdyngjur með allri sinni litadýrð og þar er hægt að ganga í gegnum aldir á jarðfræðilegan mælikvarða.  Á  svæðinu eru fjölmargar gamlar þjóðleiðir þar sem klappað  er í hraunið eftir hófa og fætur liðinna alda, landnámssagan er eftirtektaverð og breytingar á búsetu á Reykjanesskaga er einnig merkileg.


Gönguferðirnar eru allar á miðvikudögum og munu hefjast við höfuðstöðvar SBK Grófinni 2 – 4, kl. 19:00 stundvíslega (fyrir utan tvær er hefjast kl. 17:00).  Kostnaðurinn er aðeins 1000 kr. pr mann fyrir rútu fram og tilbaka og gæðaleiðsögn.


Hægt er að nálgast upplýsingar um göngurnar á eftirfarandi heimasíðum: www.hs.is - www.gge.is - www.vf.is -  www.leidsogumenn.is - www.facebook.com/reykjanes gönguferðir.


Smellið hér til  að nálgast bækling um gönguferðirnar.