Aðsent

Rangfærslur hóteleiganda
Miðvikudagur 15. ágúst 2012 kl. 09:19

Rangfærslur hóteleiganda

Steinþór Jónsson notar stór orð um fyrirhugaða færslu hótel- og gistiþjónustu í almennt virðisaukaskattþrep. Ekki mun ég elta ólar við stóryrðin sem ekki eiga við rök að styðjast. Ég vil frekar ræða við hagsmunaaðila beint en í gegnum fjölmiðla. Þó er ein fullyrðing Steinþórs sem ég get ekki látið hjá líða að leiðrétta.

 

Steinþór Jónsson notar stór orð um fyrirhugaða færslu hótel- og gistiþjónustu í almennt virðisaukaskattþrep. Ekki mun ég elta ólar við stóryrðin sem ekki eiga við rök að styðjast. Ég vil frekar ræða við hagsmunaaðila beint en í gegnum fjölmiðla. Þó er ein fullyrðing Steinþórs sem ég get ekki látið hjá líða að leiðrétta. Hann segir í viðtali við Víkurfréttir: „Það er ljóst að ef hótel- og gististaðaeigandur hefðu talið sig geta hækkað verðin síðustu ár hefðu þeir gert það því afkomutölur greinarinnar eru því miður ekki góðar. Fjölgun ferðamanna gaf þó von um að afkoman gæti farið batnandi en sá draumur virðist nú þegar vera úti. Nú á að slátra Gullgæsinni og draga úr ferðamannastraum til Íslands.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hér að neðan er graf sem sýnir verð á þjónustu hótela og gististaða samanborið við vísitölu neysluverðs. Ég bendi lesendum á að virðisaukaskattur á þjónustuna var lækkaður árið 2007 í 7% ásamt m.a. virðisaukaskatti á matvöru og þess vænst um leið að það hefði áhrif til lækkunar á verðlagningu.


Heimild: Hagstofa Íslands
Það er sannarlega ánægjulegt að ferðaþjónustan vaxi og dafni, bæði á Suðurnesjum sem og um allt land. Umtalsverð hækkun á verðlagningu hótel- og gistiþjónustu undanfarinna ára hefur ekki haft hamalandi áhrif á fjölda ferðamanna til landsins. Þeim hefur þvert á móti fjölgað svo mikið að ferðaþjónusta er nú ein þriggja meginstoða atvinnulífsins á Íslandi. Engin ástæða er til að draga upp kolsvarta mynd af framtíðinni.
Það er eðlilegt að fulltrúar hótel- og gististaða verji hagsmuni sína þegar áformað er að hækka virðisaukaskattinn upp í það þrep sem flest önnur þjónusta í landinu býr við. Betra er þó að hafa það sem sannara reynist í þeirri hagsmunabaráttu.

Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra