Ræðunámskeið hefst í dag í Virkjun
Námskeiðið byggist á leiðsögn við uppbyggingu og flutning á ræðum t.d. tækifæris-, mótmæla-, sölu-, eða kappræðum.
Tilgangurinn er að auka sjálfstraust þátttakenda og gera þá betur í stakk búna til að tala opinberlega. Námskeiðið er 5 skipti, einn og hálfan klukkutíma í senn, en fer líka eftir fjölda þátttakenda. Gott að hafa 8 í hóp og verða þátttakendur auk þess þjálfaðir í líkams- og raddbeitingu, notkun hjálpargagna við kynningar o.fl. Við þekkjum öll þá tilfinningu að okkur langaði til að segja eitthvað í afmælisveislum, í vinahópnum, á vinnustað og sjáum eftir því þegar heim er komið að hafa ekki sagt skoðun okkar. Þetta námskeið gæti hjálpað þér.
Áhugasamir hafi samband við Agnesi Láru Magnúsdóttur í síma 692 - 7170 eða skrái sig hjá Virkjun.
• Leiðbeinandi: Agnes Lára Magnúsdóttir
• Tími: Hefst 12. október, og verður á mánudögum og föstudögum kl. 13.30-15.00. (5 daga námskeið)
• Verð: Frítt fyrir atvinnulausa (í boði Agnesar Láru Magnúsdóttur). Aðrir greiða samkvæmt verðskrá Agnesar (s: 564-6492, 692-7171).