Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Mánudagur 18. nóvember 2002 kl. 20:24

Ræðan sem ég fékk ekki að flytja - Grein eftir Helgu Valdimarsdóttur

Þetta var það sem mig langaði að segja við Suðurnesjabúa á borgarfundi 17.nóvember síðastliðinn en þingmaðurinn Hjálmar Árnasson sagði að ég mætti ekki tala, einungis spyrja og fengi ég svar við spurningunni í lok fundarins:

Heilsbrigðisráðherra, þingmenn og aðrir gestir.
Góða kvöldið vonandi eru allir hér inni við sæmilega heilsu. Ég heiti Helga og er sjúklingur og öryrki og það sem er afar slæmt að heimilslæknirinn minn hefur sagt upp störfum sem og allir heilsugæslulæknar Heilbrigiðisstofnunnar Suðurnesja. Vona ég að ég fari með rétt mál að það sé vegna þess að þeir fái ekki viðurkennt að þeir séu sérfræðingar rétt einsog kvensjúkdómalæknar, lýtalæknar semog bæklunarlæknar og svo mætti lengi telja.Eftir þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér er hér um jafn langt nám að ræða. Og langar mig því að vita hvað er að. Hvers vegna er ekkert gert til þess að halda þessum læknum hér. Nú eru liðnar ríflega tvær vikur síðan að við á Suðurnesjum urðum heimilslæknalaus. Og vil ég nú að gamni mínu upplýsa háttvirtan Heilbrigðisráðherra að mun styttri er leiðin til Keflavíkur en til Kína, en það ku vera fallegt í Kína og keisarans hallir skína, en hér höfum við aðeins litla heilbrigðisstofnun, en ég hefði talið betra að hann hefði komið læknamálum hér í lag áður en hann lagði af stað til Kína.

Ekki hef ég spurt minn heimilslækni um kaup hans og kjör en ég er viss um að hver króna sem hann fær á hann fyllilega skilið. Ég er nefnilega eina af þessum heppnu sem hef notið þess að fá lækni sem er traustur, mannlegur, huggandi,gefandi og virkilega annt um sjúklinga sína, þennan lækni vil ég ekki missa og veit ég að svo er um marga hér, en nú er ég aðeins að tala um minn lækni og efast ég ekki um að hinir séu ekki síðri. Ég er alveg undrandi og þó, yfir því að fólk er dofið ég sat í gær (fyrradag) og sunnudag til þess að vekja athylgi á þessu læknaleysi.

Tíu konur komu og voru með mér tíma á laugardag og tveir karlmenn. Hér býr hraust fólk þessa daganna en ég get fullvissað fólk um að heilsugæslan er alls ekki tóm á venjulegum degi. Hvað veldur þessum doða í fólki að sýna í verki að það vilji fá lækna sína aftur. Hér hafa sennilega allir lesið litlu Gulu hænuna sem börn og aldrei gleymt henni er þetta bara ekki nokkuð góð skýring.

En aftur að læknum vonandi verður nú sest niður og fengið einhver lausn á þessu því allt er hægt þegar viljinn er fyrir hendi. Margir hafa sagt við mig að ég sé að skipta mér af hlutum sem komi mér hreint ekki við, en það er alls ekki svo. Hér bý ég og á ég rétt til þess að fá læknisþjónustu í heimabæ mínum.

Mér var sagt þegar ég var orðinn lyfjalaus, að ég gæti farið í Kópavog til læknis og fengið lyfseðil, ég hef ekki háar örorku bætur og mun því ekki fara í Kópavog eftir læknishjálp. Ég reyni að horfa á björtu hliðarnar þó að ég sé veik, en mörg ráð hef ég fengið frá Tryggingastofnun sem ég hef getað hlegið og grátið yfir og er hvoru tveggja gott. Ein í Tryggingastofnun sagði mér eða öllu heldur var að gefa mér ráð þegar ég fór að kvarta um hve lítið ég fengi í budduna mína sagði hún mér þá “að láta karlinn lönd og leið og fengi ég þá meira til ráðstöfunnar”, en ég vil nú heldur hafa karlinn minn en fleiri aura í budduna. Nú hér er útibú frá Tryggingastofnun og sagði mér hinn elskulegasti maður þegar ég var að kvarta af hverju ég fengi svona lítið ég hlýt nefnilega að vera ein af þessum frekjum sem vil fá að lifa af öryrkjabótunum án þess að þurfa að lauma hendinni í vasa bóndans og til þess að kóróna allt saman vil ég heimilislækni líka. Jæja en hann sagði að ég yrði bara að borða hrísgrjón í hálfan mánuð, en mér finnst þau mjög góð en þetta er einugis til þess að sýna ráðherra heilbrigðis hvernig svör maður fær hjá hinu opinbera.

Ég vona nú að eitthvað fari að gerast í þessu leiðinlega máli og ráðherra gefi sér tíma frá Kínaförum og fari nú að hugsa að það búi lifandi fólk á Suðurnesjum sem þurfa að hafa heimilslækna. Og þú góða frú sem hefur verið ráðin frá 1.desember, las ég grein þar sem þér finnst ýmis sóknarfæri í því að við búum í útjaðri höfuðborgarinnar værir þú til að segja mér hvað þú eigir ef þú ert hér.

Að lokum hér á ég heima, hér vil ég vera, vil minn heimilslækni aftur helst strax.

Apótekarnir okkar eru yndislegir og vilja allt fyrir mann gera en auðvitað eru þeim takmörk sett, þeir mega ekki gefa okkur lyf án lyfseðils. Nú hér er líka læknir sem kominn er á eftirlaun og hefur hann örugglega hjálpað mörgum. Ég bið ykkur nú að reyna að leysa þennan ágreining ykkar á milli sem fyrst ég get ekki beðið. Forsetisráðherra segir að hér sé góðæri og langar mig til þess að fá þetta góðæri til mín.

Þingmenn sem hér búa reynið að leysa þessa deilu sem allra fyrst og munið þið þá verða sáttir við það sem kemur úr kjörkössunum í vor. Ég vona að með þessari setu minni á heilsugæslunni hafi ég lagt eitthvað af mörkum svo við fáum aftur þjónustu þar.


Fyrirfram þökk

Helga Valdimarsdóttir
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024