Bygg
Bygg

Aðsent

Fimmtudagur 18. maí 2000 kl. 16:35

Ráðstefna um trjárækt í Stapa

Ráðstefna um skóg- og trjárækt við sjávarsíðuna verður haldin í Stapa 27. maí, á vegum Skógræktarfélags Suðurnesja og Skógræktarfélags Íslands. Á meðal fyrirlesara verða ekki ómerkari sérfræðingar en Björn Guðbrandur Jónsson, Auður Ottesen, Aðalsteinn Sigurgeirsson og fleiri góðir menn og konur. Ráðstefnugestum gefst síðan færi á að koma með fyrirspurnir og taka þátt í umræðum. Hugmyndin að ráðstefnunni kom upphaflega frá Skógræktarfélagi Íslands og þá á því formi að svæðisfélögin standi fyrir málþingi og geri úttekt á hverju landsvæði fyrir sig. Slíkt málþing var haldið á Akureyri í fyrra og tókst mjög vel. Konráð Lúðvíksson, formaður Skógræktarfélags Suðurnesja, segir að mikið verk sé óunnið á Suðurnesjum og ráðstefnan væri ætluð til að hreyfa við sem flestum, og vekja áhuga fólks á skógrækt. Hann leggurmikla áherslu á að ræktunarskilyrði hér suðurfrá séu ekki lakari en annars staðar og tekur svæðið við Vatnsholt í Keflavík sem dæmi um góðan árangur þegar viljinn er fyrir hendi. „Þar er sitkagreni sem vissi ekki hvort það ætlaði að lifa eða deyja, og þannig hafði það verið í mörg ár. Við bárum á plönturnar í fyrravor, en það hafði aldrei verið borið á þær áður, og á einu ári uxu þær um 75 sentimetra“, segir Konráð. Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands, segir að það sé gömul trú að ekkert sé hægt að rækta á Suðurnesjum. „Hér er hægt að gera eitt og annað, sérstaklega m.t.t. nýrrar þekkingar á trjátegundum og jarðvegi. Með réttu plöntuvali og réttri tímasetningu á gróðursetningu, á þetta að ganga. Nú vantar bara meiri mannafla og áhuga“, segir Brynjólfur .
Bílakjarninn
Bílakjarninn