Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Fimmtudagur 7. september 2006 kl. 10:19

Púlsinn: Orkurík fæða

Ertu orkulaus? Viltu helst sofna eftir matinn? Hvað er MSG? Hver er munurinn á lífrænt ræktuðu og ekki? Hvað má nota í staðinn fyrir hvítt hveiti og hvítan sykur? Hvað er glútenóþol og hvernig geturðu lifað með glútenóþol? Er maginn of stór? Er brauð óhollt?

 

Veistu að þunglyndi og slen getur lagast með hollu matarræði? Viltu borða betri mat? Er heilsudeildin í stórmörkuðum freistandi en samt allt of flókin deild fyrir þig? Viltu læra á hana? Langar þig að vita hvernig nota má vörur heilsudeilda?

 

Þegar þú borðar réttan mat,þá fer líkaminn í kjörþyngd,megrun er óþörf.Lærðu að nota heilsuvörur og að þekkja góðan næringarríkan mat.Nú er tækifærið til að auka hollustuna í eldhúsinu án þess að missa matarlystina eða deyja úr leiðindum. Breyttu lífsstílnum í eldhúsinu og finndu hvernig þú eflir heilsuna og úthald. Það er bara gaman að læra um orkuríka fæðu.Marta Eiríksdóttir leiðir námskeið þetta fimmtudagskvöldið 14.september,í samstarfi við heilsudeild Samkaupa Njarðvík. Skráning er hafin í síma 848 5366 og á www.pulsinn.is Á námskeiðinu verður fræðsla og einnig smakkað á heilsuvörum.Verð kr.1500.Takmarkaður þátttakendafjöldi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024