Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningar vorið 2009 fari fram 14. mars næstkomandi.
Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti:
a) Gerð er tillaga til yfirkjörstjórnar innan ákveðins framboðsfrests sem yfirkjörstjórn setur. Tillagan er því aðeins gild að hún sé bundin við einn flokksmann. Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri tillögum en hann má fæst kjósa í prófkjörinu.
b) Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönnum búsettum í kjördæminu.
Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum skv. a-lið.
Hér með er auglýst eftir tillögum að framboðum til prófkjörs, sbr. a-lið hér að ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í alþingiskosningunum. Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri framboðum en sex.
Nánari upplýsingar um prófkjörið er hægt að fá hjá Skapta Erni Ólafssyni, framkvæmdastjóra kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, í síma 899-2200 eða með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]
Tillögum að framboðum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og stuttu æviágripi á tölvutæku formi, á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, Valhöll Háaleitisbraut 1, eigi síðar en kl. 12.00 föstudaginn 27. febrúar 2009.