Prófkjör hjá sjálfstæðismönnum í Grindavík
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélags Grindavíkur hefur ákveðið að efna til prófkjörs vegna vals á frambjóðendum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Grindavík við sveitastjórnarkosningarnar næstkomandi vor. Ákveðið hefur verið að prófkjörið fari fram 25. feb. n.k. Kosið verður í sæti 1 - 7.
Eftirtaldir gefa kost á sér:
Guðbjörg Eyjólfsdóttir, skrifstofukona
Gísli Jóhann Sigurðsson, húsasmiður
Guðmundur Pálsson, tannlæknir
Heiðar Hrafn Eiríksson, útibússtjóri
Karen Matthíasdóttir, nagla og förðunarfræðingur
Magnús Már Jakobsson, öryggisfulltrúi
Pétur R. Guðmundsson, verkefnastjóri/rekstrarstjóri
Sigmar J. Eðvarðsson, bæjarfulltrúi
Svanþór Eyþórsson, iðnfræðingur
Prófkjörið verður auglýst nánar síðar.