Góð stjórnsýsla og íbúalýðræði?
Í þessum kosningum og þeim síðustu hér í Garði var mikið talað um opna og góða stjórnsýslu, íbúalýðræði ofl. Hver er reynslan síðustu fjögur ár? Voru öll störf auglýst sem ráðið var í á vegum bæjarins og nöfn þeirra sem gáfu leyfi til þess birt á heimasíðu bæjarins? Fengu bæjarbúar tækifæri til þess að koma að vali á listaverki sem sett var upp við innkomu í bæinn á 100 ára afmælinu?
Fengu bæjarbúar að vera með í ákvarðanartöku um kaupin á Útskálalandi upp kr. 90.000.000?
Á D og N listum eru nú fulltrúar sem sátu í síðustu bæjarstjórn og lofuðu opinni stjórnsýslu og íbúalýðræði. En hvað varð um efndirnar? Undirritaður telur þær ekki hafa verið neinar.
Virðingarfyllst
Jóhannes S. Guðmundsson
- Aðsent | 18. júní 2013 12:41Hjólastóllinn ekki frá Garðvangi
- Aðsent | 14. júní 2013 08:38Miklu meira en nóg til af orku fyrir álver í Helguvík
- Aðsent | 08. júní 2013 09:26Hvaða rembingur er þetta alltaf!
- Aðsent | 07. júní 2013 12:11Keflavik Music Festival heldur sínu striki
- Aðsent | 06. júní 2013 11:33Svar við opnu bréfi til Reykjanesbæjar
- Aðsent | 05. júní 2013 18:05Opið bréf til Reykjanesbæjar


