Pabbi, viltu gefa mér bókajól?
Hvaða foreldrar kannast ekki við innilegar óskir barna sinna eftir nýjustu leikföngum eða öðru því sem hugurinn girnist mest í miðju flóði auglýsinga. Áreitin dynja á okkur allan liðlangan daginn, úr öllum áttum og frá öllum fjölmiðlum, þegar það eina sem við raunverulega þráum er friðsæl stund. Og hví ekki að veita sér hana?Mér eru í barnsminni lestrarstundir við hlið foreldra minna og afa míns. Ef til vill hefur það einfaldlega verið þeirra aðferð við að koma guttanum í ró á kvöldin en mér var þetta dýrmæt stund og ómetanlegt vegarnesti út í lífið. Þau vöktu nefnilega áhuga minn á lestri. Og fyrir það verð ég Eiríki afa mínum, pabba og mömmu ævinlega þakklátur.
Ég man vel eftir ýmsum skemmtilegum jólagjöfum í barnæsku minni en engar eru þó betri en þær stundir sem ég átti yfir góðri bók. Þar opnuðust mér furðuheimar með ótal stórkostlegum persónum, sem kveiktu ímyndunaraflið í strákpjakknum og urðu endalaust tilefni leikja og meiri lestrar. Pétur Pan, Kári litli
(og auðvitað Lappi), Árni í Hraunkoti, Sandhóla- Pétur, Jakop ærlegur,Villi valsvængur, Stikkilsberja Finnur og félagar og jafnvel Baldintáta, já listinn er endalaus. Allt voru þetta persónulegir vinir mínir.
Börn hafa gaman af sögum og vísum frá unga aldri. Þegar þau eru nokkurra mánaða er gott að sýna þeim myndabækur en fljótlega hafa þau gleði af rímum og þulum, barnalögum og fingraleikjum. Síðan fara þau að átta sig á söguþræði og kunna vel að meta sögur með endurtekningum. Helst vilja þau heyra söguna aftur og aftur og síðan ennþá aftur. Þannig safna þau orðum, leika með þau og búa til ný orð.
Það er hverju barni mikilvægt að fullorðnir gefi sér tíma með þeim, lesi fyrir þau og spjalli við þau um söguefnið. Í fyrsta lagi er það svo skemmtilegt og í öðru og þriðja lagi þá eykur það þroska barnsins og orðaforða. Að ekki sé minnst á hlýju og innileika slíkrar samverustundar. Því gleymir barnið aldrei.
Stafakarlar, Múmínálfar, Harry Potter, Míó, Einar Áskell, Kuggur Blíðfinnur, Lína langsokkur, Bert og Kafteinn Ofurbrók, og margir fleiri hafa komið í stað minna gömlu vina og vonandi eru mörg börn sem tengst hafa þeim vinarböndum.
Góð bók er sannarlega góð jólagjöf, en lestrarstundin sem þú átt með barni þínu er ennþá betri gjöf. Gleðileg fjölskyldujól.
Eiríkur Hermannsson fræðslustjóri