Bygg
Bygg

Aðsent

Óttumst ei...
Laugardagur 29. september 2012 kl. 10:07

Óttumst ei...

Eitt kvöld í síðustu viku settist ég niður við skriftir og hugðist skrifa grein sem ég ætlaði að fá birta í Víkurfréttum nokkrum dögum síðar. Greinin átti að vera svargrein við skrifum bæjarstjórans í Reykjanesbæ frá því í síðustu viku og fjalla um meint skuldleysi Reykjanesbæjar. Ekki síður átti greinin að fjalla um loforð bæjarstjórans allt frá árinu 2002 og meinloku hans að kenna öllum öðrum en sjálfum sér um það sem aflaga hefur farið hér í Reykjanesbæ á síðustu 10 árum.

Ég las viðtalið við bæjarstjórann í „Reykjanesi“ og síðan las ég aftur greinina sem hann skrifaði í Víkurfréttir. Hvernig er hægt að svara þessum greinum, uppfullum að sjálfshóli, afneitunum og sýndarmennsku. Ég fór ekki í framboð til að standa í skítkasti og blaðaskrifum um keisarans skegg. Skuldir eru skuldir hvaða nafni sem þær kallast og vangaveltur bæjarstjórans breyta engu um það.
Bærinn okkar er orðinn fallegri, grasið víða grænna og margar fasteignir glæsilegri en áður var en  það er dýru verði keypt og breytir ekki þeirri staðreynd að Reykjanesbær og dótturfyrirtæki hans eru flest öll í hálfgerðu lamasessi eftir mikla fjárhagslega framúrkeyrslu mörg undanfarin ár.  

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Það sorglega er að bæjarstjórinn telur að það sé rétt leið að leiðrétta rekstur síðustu 10 ára með því að að selja eignir bæjarins sem hafa verið í eigu hans í tugi ára. Hvernig er hægt að réttlæta þannig rekstur. Ekki get ég það.

Orðagjálfur er lítils virði og ekki síður lágkúrulegt að kenna öðrum um það sem aflaga fer eins og bæjarstjórinn gerir reglulega í fjölmiðlum. Við sem erum í „hinu liðinu“ erum venjulegt fólk sem þykir einnig vænt um bæinn sinn. Það er engum hollt að sitja í hásæti of lengi því að yfirleitt kemur að þeirri stund að menn fara að trúa sjálfum sér.

Ég óttast ekki framtíðina heldur fagna henni því að hlutirnir geta sennilega ekki versnað í Reykjanesbæ heldur bara batnað.

Með virðingu um betri framtíð.

Friðjón Einarsson,
oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ