Öskubuska: Takk fyrir frábæra sýningu!

Þegar ég gekk út úr leikhúsinu fylltist ég stolti fyrir hönd krakkanna í sýningunni. Sýningin var vel heppnuð í alla staði, vel framkvæmd og umfram allt skemmtileg. Í Öskubusku kemur saman rosalega stór og breiður hópur ólíkra krakka, og þar af nokkrir krakkar sem manni hefði aldrei grunað að færu út í svona verkefni. Ég að sjálfsögðu rosalega stolt af “stelpunum mínum” í fimleikadeild Keflavíkur. Þær sýndu mér enn og aftur hversu rosalega góðir dansarar þær eru. Það sem stóð hins vegar upp úr að mínu mati voru strákarnir í sýningunni. Mér fannst þeir æðislegir, að sjá þá dansa og syngja saman var alveg meiriháttar. Þessi hópur á hrós skilið fyrir framtak sitt með þessari sýningu, öll sem eitt. Allir krakkarnir eru í skóla og þurfa því að leggja á sig auka vinnu til að ná endum saman. Þeir geta því borið höfuðið hátt enda tókst þeim gríðarlega vel upp. Frábær sýning!

Takk fyrir frábæra skemmtun og enn og aftur til hamingju með sýninguna!
Hildur María Magnúsdóttir
-yfirþjálfari hjá fimleikadeild Keflavíkur