Bygg
Bygg

Aðsent

Ósannindi í Tíðindum
Föstudagur 30. maí 2008 kl. 00:15

Ósannindi í Tíðindum

Tíðindin slá upp ósannindum í blaðinu í gær, fimmtudag. Í blaðinu segir að með aðgangi að Tetra-talstöðvarkerfi Brunavarna Suðurnesja hafi fjölmiðlar getað hlerað öll samtöl starfsmanna BS og samskipti þeirra við Neyðarlínuna. Í frétt Tíðinda segir að Sigmundur Eyþórsson slökkviliðsstjóri hafi heimilað Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, Víkurfréttum og Loga Bergmanni aðgang að Tetra-kerfinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Það er alrangt að Sigmundur Eyþórsson slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja hafi heimilað þessum fjölmiðlum/einstaklingum aðgang að Tetra-kerfinu. Það eru ósannindi hjá Tíðindum að með aðgangi að kerfinu hafi fjölmiðlar getað hlerað öll samtöl starfsmanna BS.

Það er rangt að Sigmundur Eyþórsson slökkviliðsstjóri hafi heimilað Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, Víkurfréttum og Loga Bergmanni aðgang að Tetra-kerfinu. Hið rétta er að Sigmundur heimilaði undirrituðum, til reynslu, að fylgjast með tveimur uppkallsrásum Brunavarna Suðurnesja, þar sem útköll fara fram, en ekki vinnu- eða neyðarrásum þar sem nánari samskipti viðbragðsaðila fara fram. Fjölmiðlamenn fá hins vegar smáskilaboð, SMS, þegar stórbrunar verða á útkallssvæði Brunavarna Suðurnesja.

Það eru ósannindi hjá Tíðindum að með aðgangi að kerfinu hafi fjölmiðlar getað hlerað öll samtöl starfsmanna BS og samskipti þeirra við Neyðarlínuna. Fullyrðing Tíðinda, um að með aðgangi að kerfinu hafi fjölmiðlar getað hlerað öll samtöl starfsmanna BS, er alvarleg og þess eðlis að hún vegur að starfsheiðri mínum.



Hilmar Bragi Bárðarson
Fréttastjóri Víkurfrétta