Orkubúið-heilsurækt: Fyrirlestur í Grindavík
Orkubúið-heilsurækt ehf, býður Grindvíkingum, upp á fyrirlestur um næringu og næringarfræði nk. sunnudag kl. 17.
Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi mun flytja erindi um þetta málefni. Fríða Rún hefur margra ára reynslu í næringarráðgjöf jafnt til almennings sem og afreksíþróttafólks landsins.
Fyrirlesturinn verður í Grunnskóla Grindavíkur.
Allir velkomnir.