HSS
HSS

Aðsent

Fimmtudagur 6. júlí 2006 kl. 14:38

Orðsending til foreldra

Sumarið er tíminn stendur einhversstaðar. Ekki er um það deilt. En sumarið getur líka haft alvarlegar afleiðingar þar sem rannsóknir hafa sýnt að mörg ungmenni hefja áfengisdrykkju að sumri til.  Ein mikilvægustu forvarnatæki sem til eru í dag eru samvera fjölskyldunnar, uppbyggileg tómstundaiðkun og ástundun íþrótta. Því er mikilvægt að halda ungmennum uppteknum jafnt að sumri til sem vetri. Margir freistast til að leyfa unglingunum að hafa frjálsara aðhald á sumrin, enda enginn skóli til að stunda. Ungmennin þurfa hinsvegar festu og aðhald ásamt ást, hlýju og virðingu. Nýliðnir færeyskir dagar í Ólafsvík sögðu fréttir frá því að yfir 90% gesta ,,fjölskylduhátíðarinnar“ hefðu verið á aldrinum 16 - 19 ára. Þó svo að lagalega séð hafi ungmenni undir 18 ára ekki aldur til slíkra ferðalaga nema í fylgd með fullorðnum, en fáir fullorðnir voru í Ólafsvík um liðna helgi. Undir engum kringumstæðum ætti að leyfa ungmennum að ferðast ein á útihátíðir nema í fylgd með forráðamönnum.  Fylgjumst vel með börnum okkar í sumar og verum á varðbergi gagnvart þeim hættum sem óneitanlega útihátíðir geta boðið upp á. 

 

Hafþór Barði Birgisson forstöðumaður Fjörheima og 88 Hússins

Bílakjarninn
Bílakjarninn