Opið bréf frá Kallinum á kassanum
NÚ SKULU SUÐURNESJAMENN standa saman í einu og öllu. Nú skulu Suðurnesjamenn taka höndum saman og krefja stjórnvöld um aðgerðir vegna þeirra atburða sem nú eru að gerast á Suðurnesjum. Uppsagnir hundruða einstaklinga á svæðinu er staðreynd og líkur til að hundruð til viðbótar missi vinnuna. Stjórnvöld þegja þunnu hljóði og þeirra skilaboð eru: Það flokkast ekki undir atvinnumál þó hundruðum starfsmanna sé sagt upp hjá Varnarliðinu.
Í HVAÐA HEIMI BÚA þessir stjórnmálamenn? Eru þeir á sama Íslandi og við? Eða stendur þeim á sama, þar sem þeir sitja á hinu háa Alþingi? Kallinn fylgdist með utandagskrárumræðum sem fram fóru á Alþingi í dag og hann varð forviða að sjá viðbrögð stjórnarliða. Þeir töluðu um að eitthvað þyrfti að gera – þeir bara vissu ekki hvað. Nú er liðinn rúmur mánuður síðan 90 manns var sagt upp störfum hjá Varnarliðinu og ekkert hefur verið gert frá þeim tíma. Þeir tala allir um hve þetta er vont mál – en ekkert er gert.
NÚ ERU ÞAÐ ÍBÚARNIR sem þurfa að taka í taumana og stýra stjórnvöldum inn í raunveruleikann. Kallinn hvetur til þess að haldinn verði borgarafundur um atvinnumál á Suðurnesjum og að á þeim fundi verði samþykkt ályktun þar sem stjórnvöld eru krafin um aðgerðir.
BORGARAFUNDURINN þarf að halda fljótt og það þurfa gríðarlega margir að mæta á slíkan fund. Nú þurfa íbúar á Suðurnesjum að sýna samstöðu, fjölmenna og krefja stjórnvöld um aðgerðir.
KALLINN ÞEKKIR töluvert marga sem hafa fengið uppsagnarbréf og lífið hjá þessu fólki er ekki auðvelt. Atvinnuástandið er hrikalega slæmt á svæðinu og þetta fólk sér ekki fram á að fá vinnu. Jólin eru í nánd og eitt er víst að þau verða erfið fyrir þá sem hafa fengið uppsagnarbréfin.
NÚ STANDA ÍBÚAR Suðurnesja frammi fyrir einum stærsta vanda síðustu áratuga og Kallinn ítrekar það enn og aftur að fólkið verður að standa saman.
ÞAÐ ER EKKI hægt að bíða þangað til fólk fer að flytjast í burtu af svæðinu, af þeirri einföldu ástæðu að það er ekkert gert. Hvorki sveitarstjórnarmenn né stjórnvöld hafa gert neitt nema talað í sambandi við þetta gríðarstóra mál sem atvinnumál eru.
NEI, NÚ ER KALLINN fokvondur og hann vill sjá samstöðu hér. Í þessum pistli skrifar Kallinn opið bréf til eftirfarandi aðila og birtist bréfið hér á eftir:
Opið bréf frá Kallinum á kassanum til eftirfarandi aðila:
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar
Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Sandgerðisbæjar
Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar
Sigurður Jónsson, sveitarstjóri Gerðahrepps
Jóhanna Reynisdóttir, sveitarstjóri Vatnsleysustrandarhrepps
Og aðrir sveitar- og bæjarstjórnarmenn á Suðurnesjum.
Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja
Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur
Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingar í Suðurkjördæmi
Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi
Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi
Böðvar Jónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum
Kæru aðilar,
NÚ ÞURFA Suðurnesjamenn að taka höndum saman og bregðast við því ástandi sem nú er að skapast á Suðurnesjum. Íbúar svæðisins þurfa að krefja stjórnvöld um aðgerðir vegna þeirra uppsagna upp á síðkastið og þess atvinnuleysis sem stöðugt fer vaxandi.
NÚ ER EKKI TÍMI pólitískra flokkadrátta og argaþrass sem oft hefur viljað einkenna störf þeirra manna sem kjörin eru lýðræðislegum kosningum fyrir fólkið í landinu og á svæðum landsins. Nú skulið þið snúa bökum saman og vinna sem einn maður fyrir fólkið á Suðurnesjum – fólkið sem kaus ykkur.
EINN KOSTUR í stöðunni er að halda fjölmennan borgarafund þar sem stjórnvöld yrðu krafin um aðgerðir í þeirri hrikalegu stöðu sem nú er upp komin. Stjórnvöld þurfa að sjá að hér stendur fólk saman – og ekki má gleyma því að Suðurnesin eru þriðji stærsti þéttbýliskjarni landsins.
TILLAGA KALLSINS á kassanum er sú að þið boðið til borgarafundar í næstu viku þar sem atvinnumál á Suðurnesjum skulu rædd. Þið hafið bæði tíma, fjármagn og vonandi vilja til að halda slíkan fund þar sem samstaða íbúanna kæmi fram – og fundarmenn kæmu fram sem einn maður. Borgarafundinn ætti að halda í Reykjaneshöllinni!
ÞAÐ VERÐUR AÐ bregðast við þessu ástandi og fjölmennur borgarafundur er ein leiðin til þess.
HUGSIÐ ÞIÐ um alla þá sem hafa fengið uppsagnarbréf og þá sem eiga eftir að fá uppsagnarbréf. Getið þið sem forsvarsmenn fólksins á svæðinu setið hjá og horft aðgerðarlausir á það sem er að gerast hér? Kallinn elur þá von í brjósti að þið bregðist við kalli fjöldans og boðið til fundarins, fylgið þeirri ályktun sem þar verður samþykkt eftir og vinnið fyrir fólkið og svæðið í heild sinni.
KALLINN ÓSKAR SVARA frá þeim aðilum sem bréfið er stílað á. Kallinn mun birta svör allra aðila.
BOÐIÐ TIL borgarafundar fyrir fólkið! Það er ykkar skylda!
Kveðja,
Kallinn á kassanum