Ómar Ragnarsson og Valgerður Bjarnadóttir á opnum fundi
Þjóðaratkvæðagreiðla og ný stjórnarskrá á daskrá
Fjallað verður um þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá á opnum fundi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ fimmtudaginn 4. október nk. Fundurinn verður haldinn í Samfylkingarsalnum Víkurbraut 13 við Keflavíkurhöfn, hefst kl. 20.00 og er öllum opinn.
Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður og fulltrúi í Stjórnlagaráði, og Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, ræða á fundinum tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá og þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fer fram eins og kunnugt er þann 20.október næstkomandi.
Allir velkomnir.
Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ