Öll Þjónusta Reykjanesbæjar við ykkur er örugg
Í því gjörningaveðri sem nú ríkir á Íslandi er mikilvægt að íbúar Reykjanesbæjar viti að stjórn bæjarins og hin margvíslega þjónusta sem bæjarfélagið veitir, stendur styrkum fótum.
Eiginfjárstaða bæjarins er sterk og fjárhagslegar eignir okkar einnig.
Atvinnulífið er í sókn, þar sem álversuppbygging er komin á fulla ferð og Norðurál er reiðubúið að flýta framkvæmdum ef orka fæst strax til næstu áfanga.
Tvö önnur stórverkefni eru í góðum undirbúningi. Í síðustu viku gaf Skipulagsstofnun jákvætt álit sitt á umhverfismati vegna Kísilmálmverksmiðju í Helguvík, sem við höfum unnið að án mikilla yfirlýsinga í tvö ár. Lóðin er tilbúin. Hitt verkefnið er Gagnaverið á Vallarheiði sem gerir ráð fyrir að hefja starfsemi á þriðja ársfjórðungi næsta árs og undirbúningur vegna þess er að komast á fulla ferð. Orka á að vera trygg í gagnaverið en orku þarf að tryggja betur í 1. áfanga Kísilmálmverksmiðjunnar.
Meðan á framkvæmdum þessum stendur við þessi þrjú verkefni næstu ár skapast yfir 1100 störf á byggingartíma og í framhaldinu skapast um 500 störf í verunum sjálfum með um 1200 störfum til viðbótar vegna hliðaráhrifa.
Við erum þakklát því trausti sem þið hafið sýnt okkur með því að meta þjónustu bæjarfélagsins þá bestu sem býðst í íslensku bæjarfélagi og við munum leggja áherslu á að veita þá þjónustu áfram.
Hvergi verður gefið eftir í að veita góða og örugga þjónustu leikskóla, grunnskóla og félagslega þjónustu. Stuðningur við íþrótta- og menningarfélög heldur áfram svo og öll önnur þjónusta sem bærinn veitir.
Með hliðsjón af þeim atriðum sem ég hef nefnt er mikilvægt að hafa bjargfast að ríkisstjórnin og alþingi lofa a.m.k. þrennu mikilvægu fyrir alla landsmenn:
1. Peningalegur sparnaður landsmanna í öllum íslenskum lánastofnunum, bönkum og sparisjóðum er tryggur.
2. Íbúðalánasjóður tekur yfir lán þeirra sem eru í vanda og lofað hefur verið lánbreytingum og stuðningi til þeirra sem standa ekki undir greiðslum.
3. Fyrirtækjum verða tryggð útlán.
Við tókum samhent á aðsteðjandi vanda þegar Varnarliðið fór og sköpuðum úr þeirri stöðu mörg ný tækifæri sem eru að þroskast og skila okkur árangri. Keilir, skólasamfélagið okkar og Gagnaverið á Vallarheiði eru skýr dæmi um það.
Við getum sem samfélag staðið áfram sterk og tryggt að heimili og skólar séu áfram traust athvarf barnanna okkar. Það er mikilvægt að börnin hafi bjarta sýn á framtíðina og það er sannarlega engin ástæða til annars. Stöndum saman nú sem fyrr og virkjum áfram kraftinn sem býr í samfélagi okkar. Óhjákvæmilega munu margir eiga um sárt að binda þótt verkefnið sé að gera þann vanda einungis tímabundinn.
Við getum stytt þann tíma með því að sýna hvert öðru stuðning, unnið ótrauð að okkar verkefnum og veitt skynsamlega bjartsýni inn í samfélagið hvar sem við förum.
Árni Sigfússon
Bæjarstjóri