Bygg
Bygg

Aðsent

Óla á þing!
Miðvikudagur 14. nóvember 2012 kl. 06:17

Óla á þing!

Ólafur Þór býður sig fram í 2. – 3. sæti í forvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Allir sem eru skráðir í flokkinn eða skráðu sig á stuðningsmannalista geta hjálpað til að fá Óla á þing.

Ég kynntist Óla vel þegar við unnum saman að framboði S-listans fyrir 6 árum. Helstu kostir Óla eru hversu kraftmikill og réttsýnn hann er. Ólafur gengur beint að verki, spyr spurninga og krefst svara. Hann er Suðurnesjamaður, Sandgerðingur í húð og hár og skiptir þetta svæði hann miklu máli, þá helst þegar kemur að uppbyggingu atvinnu hér á Suðurnesjum.

Það sem er líka heillandi við Óla er hversu lítinn mannamun hann gerir á fólki. Hann veit hvernig það er að koma upp heimili og fjölskyldu. Hann fæddist ekki með gullskeiðina í munninum.  Við þurfum á þannig fólki að halda á þingi, jarðtengdan mann sem gefur sér tíma í að hlusta á kjósendur. Mann sem talar fyrir okkar hönd og berst fyrir okkar kjörum.

Fríða Stefánsdóttir

Bílakjarninn
Bílakjarninn