Oft er beðið um hjálp en ekki þegin
Oftar en ekki er hringt þegar ástandið er orðið svo alvarlegt og allt komið úr böndunum og er þá yfirleitt beðið um SVAR ekki álit, hvað get ég gert til þess að laga ástandið í þessum og hinum málum er varða afleiðingar af neyslu áfengis, fíkniefna, ofbeldis og annarra vímugjafa bæði á ungum sem öldnum.
Það er kallað á hjálp en oftar en ekki er aðstoðin ekki þegin vegna þess að sjálfsmyndin, öryggið er farið og ótti við að takast á við eitthvað sem fólk þekkir ekki né ræður við.
Flestir vilja fara aðrar leiðir en þeim er rálagt og það boðar ekki gott.
Veikur einstaklingur getur ekki aðstoðað annan veikann, við þurfum að fá lánaða dómgreind frá öðrum og nýta okkur hana.
Að vera í afneitun getur haft alvarlegar afleiðingar og varanlegan skaða ef ekkert er að gert. Þeir sem eru í afneitun á ástandið eins og það er, gera sér yfirleitt ekki grein fyrir því, eiga ekki sjö dagana sæla. Í hvert skipti sem eitthvað kemur upp í sambandi við þann sem maður er að hylma yfir og reyna að hafa stjórn á hvort sem það eru börn okkar, maki, foreldrar, systkini, barnabarn eða vinur þá tökum við enn meiri vandamál inná okkur “þeirra vandamál”. Tökum ábyrgðina af öðrum, bætum því á okkar herðar ( nóg pláss þar ) og fyllumst sjálf enn meiri kvíða og ótta sem veldur oft á tíðum mikilli streitu og fleiri kvillum með því að reyna að hafa stjórn á ástandinu.Með þessu gerum við honum (þeim og okkur) kleift að halda áfram í sínu rugli, jafnvel svo árum skiptir og verða veikari og veikari. Meðan svo er gera þau ekkert í sínum málum og verða veikari og veikari og þú líka. Á endanum verðum við svo hokin að burðast með allan þennan pakka , bæði okkar og þeirra að við getum ekki horft upp með hreina samvisku.
Við fyllumst af skömm í stað þess að gera eitthvað.
En þar sem við erum orðin svo óheiðarleg, veik og meðvirk líka, gerir það okkur léttara fyrir að horfa framan í næsta mann og segja að allt sé í lagi, sem er auðvitað haugalygi. Hugsið ykkur að vera á þessum stað jafnvel bara út af stoltinu einu saman eða einhverju öðru, eða hræddur við álit annara. Það kemur allaf að því að allt springur, hvar stöndum við þá. Fjölskyldan farin, tvístrast í allar áttir og jafnvel búinn að missa allt. Þetta bitnar alltaf fyrst og fremst á þeim sem standa manni næst, þeim sem maður elskar. Þá er það stóra spurningin, hvað ætla ég að gera. Halda áfram að safna í ruslapokann og láta mér líða ömurlega áfram eða gera eitthvað í málunum (leita mér hjálpar) og taka leiðsögn.
Ég var orðinn andlega gjaldþrota en þú þarft ekki að ganga svona langt til að gera eitthvað fyrir þig.
Ég reyndi ýmislegt áður en ég leitaði mér hjálpar, en það gekk bara ekki upp því ég fékk ekki þá eftirfylgni sem ég þurfti og hafði ekki kjark né kunnáttuna heldur til að takast á við þetta. Þannig að ég endaði alltaf í sama farinu aftur. Ég var svo fullur af ótta að ég þorði ekki að takast á við hlutina. Tók ekki einu sinni upp hanskann fyrir mitt fólk þegar svo bar undir, vegna þess að ég var að reyna að verja sjálfan mig fyrir öll mín mistök en ekki einhvern annan, svo meðvirkur var ég orðinn, óttasleginn og veikur einstaklingur þegar ég sagði við sjálfan mig, hingað og ekki lengra, ég verð og ég skal gera eitthvað áður en illa fer.
Ég veit að það er erfitt að komast út úr þessu og að taka slíka ákvörðun. En að hafa gert það og gera eitthvað í málunum og vera jákvæður í því og með opinn huga þá fær maður nýtt viðhorf á lífið og þá er bara gaman. Lífið og betri líðan blasir við á ný.
Hvernig væri nú að gefa sér smá tíma fyrir sjálfan sig til að hugsa aðeins málið og huga að því hvar maður er nú staddur með líf sitt og líðan í dag.
Er ég sátt/ur með stöðuna eins og hún var, eins og hún er, vil ég hafa það svona áfram ?
Ef ekki, hvað ættla ég að gera í því ?
Látið stoltið ekki standa ykkur fyrir þrifum, þið eigið betra skilið.
Þar sem aðstaðan er til staðar hér hjá okkur á Suðurnesjum, vona ég að þið notfærið ykkur þann stuðning sem þar er að finna.
Hjá Lundi er dagskrá alla mánudaga : Ráðgjafaviðtöl – stuðningsgrúppa – foreldrafræðsla og fleira.
Ef þú átt í vanda með einhverja fíkn, þá átt þú erindi í Lund
Ef þú ert aðstandandi þá átt þú erindi í Lund
Ef þú hefur minnsta grun, þá átt þú erindi við Lund
Sjá www.lundur.net
Eigið góðan dag.
Erlingur Jónsson S: 772-5463