Öflugt atvinnulíf – grundvöllur velferðar
Þjóðin vill verja velferðina. Samfylkingin er velferðarflokkur. Undirstaða velferðarinnar er öflugt atvinnulíf. Í atvinnumálum er það hlutverk stjórnvalda að skapa hagstæð skilyrði og rekstrarumgjörð. Þetta hefur ekki verið auðvelt verkefni í kjölfar efnahagshruns eins og við höfum upplifað en að undanförnu hefur smátt og smátt birt til.
Stuðningur við atvinnuleitendur nauðsynlegur
Frá efnahagshruninu haustið 2008 hafa atvinnumál verið í deiglunni. Hrunið hafði í för með sér að margir stóðu uppi atvinnulausir. Atvinnuástandið hefur verið erfitt allar götur síðan þótt töluvert hafi rofað til á undanförnum mánuðum.
Atvinnuleysi er böl sem stjórnvöld verða, í samvinnu við atvinnulífið, að leita allra leiða til að útrýma. Suðurnesin hafa orðið sérstaklega illa úti hvað atvinnumálin varðar og setja verður átak í atvinnumálum þar í algjöran forgang.
Hlutverk stjórnvalda er að veita atvinnuleitendum eins mikla aðstoð og mögulegt er, bæði til þess að hjálpa fólki af stað í menntun til að auka starfmöguleika þess í framtíðinni og í atvinnuleitinni sjálfri. Það er forgangsmál að allir atvinnuleitendur eigi kost á aðstoð og stuðningi.
Helguvík – of löng bið
Of lengi hefur verið beðið eftir því að framkvæmdir við álver í Helguvík komist af stað fyrir alvöru. Sú bið og sú óvissa hefur að mínu mati verið óheppileg. Stjórnvöld hafa lagt mikla áherslu á að þetta verkefni verði að veruleika en nú er beðið eftir því að orkusamningar náist. Mikilvægt er að þeir samningar klárist sem allra fyrst svo hægt sé að eyða allri óvissu og koma verkefninu af stað. Það mun hafa jákvæð áhrif á atvinnustigið á svæðinu til skemmri og lengri tíma.
Nýsköpun mikilvæg
Ekki er nóg að einblína á orkufrekan iðnað. Það hefur reynslan sýnt okkur. Við verðum sem samfélag að leggja áherslu á að efla nýsköpun í þjóðfélaginu. Sú nýsköpun á sér ekki bara stað í nýjum skapandi atvinnugreinum heldur einnig innan hefðbundinna undirstöðuatvinnugreina. Slík nýsköpun með áherslu á menntun og þekkingu er líklegust til þess að standa undir þeirri verðmæta – og atvinnusköpun sem við viljum sjá.
Niðurstaðan er því sú að Samfylkingin, sem velferðarflokkur, verður að huga að atvinnulífinu vegna þess að án öflugs atvinnulífs er hætt við því að stoðir velferðarkerfisins fúni.
Árni Rúnar Þorvaldsson
Bæjarfulltrúi á Hornafirði
Býð mig fram í 2. – 4. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi