Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Nýtt nám hjá Keili - Háskólabrú með vinnu
Sunnudagur 5. október 2014 kl. 13:50

Nýtt nám hjá Keili - Háskólabrú með vinnu

Hefur þú alltaf stefnt á háskólanám en hefur ekki lokið framhaldsskóla? Keilir býður nú upp á aðfaranám að háskólanámi í fjarnámi til tveggja ára. Um er að ræða frábæran möguleika fyrir þá sem að vilja taka Háskólabrú með vinnu eða taka aðfaranám á lengri tíma.

Námið er tekið á tveimur árum og er skipulagt eins og fjarnám Háskólabrúar. Námið fer fram í formi fyrirlestra og verkefna en auk þess eru staðlotur þrisvar á önn. Nánari upplýsingar um námið má nálgast á slóðinni www.haskolabru.is

Nýtt tækifæri til náms

Hátt í 1.200 einstaklingar hafa lokið námi í Háskólabrú Keilis og hefur námið undanfarin ár markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur, ásamt því að miða kennsluhætti við þarfir fullorðinna nemenda. Miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Skipulag námsins hentar fullorðnum námsmönnum einstaklega vel þar sem kennt er í lotum, nemendur einbeita sér að einum áfanga í einu sem tekur um fimm vikur.

Nýstárlegir kennsluhættir í framsæknu skólaumhverfi

Keilir er leiðandi aðili í vendinámi eða speglaðri kennslu. Með því er átt við að hefðbundinni kennslu er snúið við. Fyrirlestrar og kynningar kennara eru vistuð á netinu og geta nemendur horft á þær eins oft og þeim sýnist og hvar sem þeim sýnist. Nemendur vinna aftur á móti heimavinnuna í skólanum, oft í verkefnum, undir leiðsögn kennara. Kennslustundir í skólanum verða fyrir vikið frábrugðnar hefðbundinni kennslu.

Þar sem þetta form hefur verið reynt virðist lærdómurinn verða lifandi ferli sem virkjar nemendur á skemmtilegan hátt. Nám er alltaf á ábyrgð nemenda og undirbúningur fyrir verkefnatímana í skólanum er nauðsynlegur til þess að vinnan í skólanum nýtist á virkan hátt.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024