Nýjar menntunarleiðir á Suðurnesjum
Skólar eru ein leið til menntunar. Margir menntast sjálfir í skóla lífsins en í flóknum heimi nútímans er menntun á tilteknu sviði, sem fylgir sérþekking og fagkunnátta, mikilvæg til að fóta sig á vinnumarkaði. Hins vegar er hægt að fullyrða að skólakerfi okkar svarar ekki að öllu leyti breyttum tímum í samfélaginu. Skólinn er sumpart staðnaður er varðar námsframboð, sérstaklega á framhaldsskólastiginu. Þar er við stjórnvöld að eiga en ekki þann góða mannskap sem mannar skólana. Þetta snýst um að bjóða upp á nýjar námsleiðir, sérstaklega í starfstengdu verknámi.
Því var einkar hressandi að heyra góða ræðu Hjálmars Árnasonar framkvæmdastjóra Keilis á aðalfundi Vinnumálastofnunar á dögunum. Fáir þekkja betur til skólamála en hann sem kennari, skólameistari, þingmaður í menntamálanefnd þingsins og nú sem forystumaður Keilis. Við Hjálmar kynntumst vel í þinginu þegar við sátum saman í menntamálanefnd og deildum saman áhuga á að stokka upp framhaldsskólann með nýjum námsleiðum og styttri starfsbrautum til ýmissa verklegra greina.
Keilir og kostir í menntamálum
Í ræðu sinni náði Hjálmar að fanga þann kjarna sem mér þykir við þurfa að ná utan um til að breyta kerfinu. Hann sagði m.a. að skólakerfið á Íslandi lyti enn skipulagi iðnbyltingarinnar og upplýsingabyltingin hefði haft tiltölulega lítil áhrif á skipulag þess. Nemendur ættu að mæta í tíma þegar bjallan hringdi og þeir væru að læra meira og minna það sama. Lítið væri tekið tillit til þarfa atvinnulífsins, enda tengsl milli skóla og atvinnulífsins lítil.
Annar þáttur í háu brottfalli framhaldsskólanema væri sú einfalda staðreynd að við hefðum í of miklum mæli haldið atvinnulífinu utan við skólakerfið. Segja mætti að skólar annars vegar og atvinnulífið hins vegar hafi gert þegjandi samkomulag um að halda hvoru öðru aðskildu frá hinu.
Undir þetta tek ég og tel að Keilir og framgangur hans sem menntastofnunar á liðnum árum sé fágætt dæmi um hvernig á að gera hlutina. Sérstaklega hvað við náum miklum árangri með því að kalla atvinnulífið til leiks við uppbyggingu á framsækinni, fyrsta flokks menntastofnun á borð við Keili sem svarar kalli fólksins um nýjar leiðir til menntunar. Ég er stoltur af því að hafa notið þeirra forréttinda að styðja við uppbyggingu Keilis þó í litlu mæli sé og mun áfram gera af fullu afli.
Sérskóli á sviði sjávarútvegs
Annað gott dæmi um nýjar leiðir til náms er einnig að finna á Suðurnesjum. Fisktækniskólann í Grindavík, sem náði þeim langþráða áfanga þann 20. júlí að fá formlega viðurkenningu frá menntamálaráðuneytinu, sem skóli á framhaldsskólastigi. Viðurkenning sem markar þáttaskil í uppbyggingu skólans.
Þannig hefur margra ára þróunarstarf fræðsluaðila, sveitarfélaga og hagsmunaaðila í sjávarútvegi á Suðurnesjum nú skilað sér í formlegri viðurkenningu menntamálaráðuneytisins og hefur Fisktækniskólinn nú sambærilega stöðu og aðrir framhaldsskólar – nema hvað áherslan er á grunnmenntun í sjávarútvegi og tengdum greinum.
Markmiðið með skólanum er auk þess að auka veg og virðingu menntunar í sjávarútvegi, að auka framboð á starfstengdu námi. Það er kjarni skólans og að mínu mati er hann langþráð viðbót við framhaldsskólaflóruna og á fullan rétt á sér sem slíkur.
Raddir hafa verið uppi um að hann eigi heima sem deild í FS. Því er ég ósammála og hef sem formaður menntamálanefndar Alþingis beitt mér mjög fyrir því að skólinn fái viðurkenningu sem sjálfstæður framhaldsskóli. Frá vorönn 2010 hefur skólinn tilraunakennt hluta námsefnisins sem verið var að þróa og hafa hátt í 50 nemendur tekið þátt í þessu verkefni. Mikil ánægja var með námið. Vinnumálastofnun kostaði námið en verkefnið var síðan fært undir menntamálaráðuneytið árið 2011 sem liður í átaksverkefni fyrir Suðurnesin.
Námið er tveggja ára vinnustaðatengt grunnnám á sviði veiða, vinnslu og fiskeldis og lýkur með framhaldsskólaprófi, er hagnýtt og ljúka nemendur meðal annars réttindanámi til smáskipa, lyftara auk fjölmargra hagnýtra áfanga tengdum sjávarútvegi.
Þetta er meginmálið í því sem vantar í miklu meira mæli inni í flóru námsleiða á framhaldsskólastigi.
Með þessum hætti fyrst og fremst er unnið gegn þeirri meinsemd sem hátt brottfall er á íslensku framhaldsskólakerfi. Höldum áfram á þessari braut í góðri samvinnu við atvinnulífið og byggjum á sérstöðu og styrkleikum hvers byggðalags fyrir sig. Þannig náum við góðum árangri.
Björgvin G. Sigurðsson,
formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis.