Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Mánudagur 30. janúar 2006 kl. 13:40

Nú er nóg komið!

Suðurnesjamenn verða að taka höndum saman og þagga niður í Samtökum Verlsunar og Þjónustu

Enn á ný verður Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir árásum Samtaka Verslunar og þjónustu (SVÞ). Samtökin segja nú á heimasíðu sinni að til standi af hálfu Fjármálaráðuneytisins að gefa út reglugerð sem takmarki verulega vöruframboð í komuverslun Fríhafnarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Af og til undanfarin ár hefur hagsmunagæsluaðili heildsala og annarra kaupmanna þ.e. SVÞ vakið athygli á því að stunduð sé ríkisverslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) en FLE er hlutfélag í eigu ríkisins sem sér um rekstur flugstöðvarinnar skv. lögum frá Alþingi. Málflutningur SVÞ hefur hreint út sagt verið með eindæmum á villigötum, fullur af staðreyndarvillum og byggður á sérhagsmunum fárra á kostnað megin þorra almennings og ekki síst framtíð og vexti ferðaþjónustu í landinu.    

40-50 störf í húfi á Suðurnesjum
Komi til þess að vöruframboð í komuverslun Fríhafnarinnar verði takmarkað við áfengi og tóbak eins og sagt er frá á heimasíðu SVÞ blasa við fjöldauppsagnir í Flugstöðinni. Varlega áætlað má gera ráð fyrir að 50 störf tapist.

Verslunin myndi flytjast úr landi
Augljóst er að ef farið verði eftir kröfum SVÞ mun sú verslun og þjónusta sem farþegar fá í komuverlsun Fríhafarinnar flytjast úr landi en ekki til skjólstæðinga SVÞ. Störfin og peningarnir myndu flytjast úr landi til annarra flugstöðva vítt og breidd um heiminn. Ef komuverslun væri lögð niður er ljóst að farþegar myndu einfaldlega kaup þessar vörur í öðrum fríhöfnum.

Fríhöfnin er því í beinni samkeppni við fríhafnir á öðrum flugvöllum en ekki í samkeppni við verslanir innanlands. Komuverslun fríhafnarinnar er til þæginda fyrir ferðamenn en auk þess má færa rök fyrir því að hún spari flugfélögum eldsneyti vegna þess að farþegar þurfa ekki að flytja varninginn með sér í flugvélunum og þar með þyngja þær verulega auka eldsneytiskostnað flugfélaganna.

Álögur á farþega aukast og farmiðar hækka
Ef farið verðr að óskum SVÞ er ljóst að Flugstöðin verði af um 1,5 milljarði króna á ári í töpuðum tekjum. Flugstöðin má ekki við því og verður því að fá þessar tekjur með öðrum hætti, eina leiðin í fljótu bragði er með því að taka upp einhverskonar gjald sem myndi leggjast á verð flugfarmiða hjá farþegum sem leið eiga um Keflavíkurflugvöll með tilsvarandi hækkunum á fargjöldum flugfélaganna.   

Stækkun Flugstöðvarinnar í uppnámi og enn fleiri störf !
FLE hf  er félag sem tók yfir rekstur Flugstöðvarinnar og Fríhafnarinnar árið 2000. Óhætt er að fullyrða að vel hafi gengið hjá hinu unga hlutafélagi og löngu tímabærar framkvæmdir við Flugstöðina eru nú komnar á fullt skrið. Samkvæmt áætlun FLE munu framkvæmdir í ár kosta um 5 milljarða króna. Megin þorri þessara framkvæmda eru fjármagnaðar með verslunarrekstri FLE hf. Ekki króna kemur úr ríkissjóði, þvert á móti greiðir FLE arð til ríkisins á hverju ári. Samkvæmt áætlun FLE munu þessar framkvæmdir stórauka verslun og þjónustu við flugfarþega og flugrekendur með tilsvarandi fjölgun starfa á Suðurnesjum. Það er alveg ljóst að ef ekki kæmu til tekjur af verslunarrekstri FLE myndi annaðhvort þurfa að leggja ný þjónustugjöld á flugfarþega flugfélaganna eða biðja um fjármagn úr ríkissjóði til að hægt væri að fjárfesta í uppbyggingu Flugstöðvarinnar. Ég hef ekki trú á að unnt væri að ná í þessa peninga í ríkissjóði og ég er ansi hræddur um að flugrekstraraðilar væru ekki kátir með ný þjónustugjöld sem myndi leiða til hækkunar flugfarmiða til og frá landinu. Ljóst er að ný þjónustugjöld á flugfarþega myndu draga úr samkeppnishæfni íslenskra flugfélaga og hafa alvarlega neikvæð áhrif á þróun ferðaþjónustu hér í landi sem útflutningsatvinnugrein sem ég tel nánast öruggt að þjóni ekki hagsmunum skjólstæðinga SVÞ.

Er Flugstöð Leifs Eirískssonar er einstök í heiminum ?
Flugstöð Leifs Eiríkssonar sker sig verulega frá öðrum alþjóðlegum flugstöðvum sem reknar eru vítt og breitt um heiminn. T.d. eru 80% af tekjum Terminal 4 (Flugstöð 4) við JFK flugvöllinn í Bandaríkjunum þjónustugjöld sem flugfélög greiða fyrir að fá að ferja flugfarþega sína í gegnum flugstöðina. Til samanburðar eru tekjur FLE hf af slíkum gjöldum 0 kr. Einu tekjurnar sem FLE hf hefur af flugrekstraraðilum eru í formi leigugreiðslna fyrir notkun á aðstöðu sem FLE hefur fjárfest í og nema um 6% af heildartekjum FLE.

Hagsmunir ferðaþjónustunnar
Flestir eru sammála mikilvægi vaxtar og velferð ferðaþjónustu í landinu og áhrifa þess á íslenskt atvinnulíf. Í því sambandi er afar brýnt að rekstur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE) gangi vel og að um hann ríki sátt í þjóðfélaginu. Hagsmunir okkar eru fyrst og fremst þeir að þær tekjur og sá virðisauki sem verður til með verslunarrekstri í Flugstöðinni haldist á svæðinu og fari í frekari uppbyggingu stöðvarinnar svo unnt sé að veita sífellt fjölgandi flugfarþegum betri og ódýrari þjónustu. Fyrirkomulag rekstrarins er útfærsluatriði, aðalatriðið er að finna bestu leiðina að settu marki sem er að sjálfsögðu vöxtur og velferð ferðaþjónustu í landinu en Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Keflavíkurflugvöllur eru í raun mikilvægasti einstaki þáttur þeirrar þróunar.

Eysteinn Jónsson
Stjórnarmaður í FLE hf.  og Formaður Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjanesbæ
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024