HSS
HSS

Aðsent

Nú er lag til sóknar!
Sunnudagur 24. mars 2013 kl. 14:17

Nú er lag til sóknar!

Á yfirstandandi kjörtímabili hefur mátt lesa í fjölmiðlum frétt eftir frétt þar sem greint hefur verið frá því hvernig sorfið hefur verið að byggðunum á Suðurnesjum með svo þrúgandi afskiptaleysi að það sinnuleysi verður ekki skýrt nema sem ákveðnar aðgerðir. Þetta kann í fyrstu að hljóma sem öfugmæli en svo er ekki; þegar aðgerðarleysið er orðið svo himinhrópandi getur það ekki flokkast undir neitt nema aðgerð. Vitsmunalegt ráðabrugg sem fylgt er eftir með engu – svo það sem var illa statt í byrjun verði í enn verri málum á eftir.

   Þegar að blessaður eða bölvaður herinn, sem gerði Reykvíkinga ríka, fór og beygði sig ekki einu sinni eftir síðasta sígarettustubbnum sem hann hrækti á Hafnargötuna áður en hann sagði gúd bæ – hvað þá að hann hreinsaði eftir sig vítisvélar, þungmálma eða spilliefni – þá gerðist það í einni sjónhending að svo margar fjölskyldur misstu fyrirvinnu á einu bretti að aldrei í Íslandssögunni hafði annað eins gerst. Ekki einu sinni þegar Björgólfi var gefinn Síminn, Ólafi Samskip og Finni afgangurinn. Ekki einu sinni þegar síldin hvarf.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

   Þegar það var orðið sem hlaut að gerast – að herinn færi – þá bjuggust allir óbrjálaðir menn við því hér á Suðurnesjum að viðhorf framkvæmda- og fjárveitingavaldsins í Reykjavík myndi breytast. Og hið lúna viðkvæði (sem er orðið svo fast í málinu að líklega mun það rata inn í næstu útgáfur orðtakasafna) „þið hafið herinn“ – myndi nú hverfa líkt og herinn sjálfur, sjálfkrafa út í fjarvíddirnar.

   En, nei! – öðru nær. Þessi tugga hélt áfram með nauðsynlegum orðalagsbreytingum. Orðinu „herinn“ var skipt út fyrir „flugvöllinn“ eða bara út fyrir ekki neitt. Þið hafið ekki neitt. Og svo var látið að því liggja að á Suðurnesjum væri allt í lukkunnar velstandi. Nema þegar nauðsynlegt þótti – í pólitíska sandkassaleiknum – að sparka í Árna Sigfússon. Þá var bent á að Suðurnesjamenn hefðu flugvöllinn, ekkert og Árna Sigfússon! Í þessu var hrært um stundarsakir og útkoman var núlNú er lag til að breyta um kúrs. Afrugla embættismennina og sérhagsmunaspekingana í ráðuneytunum, nú er lag til að skipta um þingmeirihluta. Nú er lag til að fá nýtt blóð og ný verkefni upp á borð og út um byggðirnar. Sérstaklega byggðirnar hér suður með sjó.

   Nú gapir hver spekingurinn upp í annan og finnur út með mælingum og meðaltölum að Hólmsheiði sé sérlega heppilegur staður fyrir flugvöll, þar hefur þó ekki verið flugvöllur áður svo vitað sé – þrátt fyrir grósku í fornleifarannsóknum, en hér á Miðnesheiði hefur verið flugvöllur um alllangt skeið og má sjá móta fyrir honum á loftmyndum.

   Reykjavíkurflugvöllur er á útleið – það er öruggt, það er aðeins óvíst hvert innanlandsflugið flyst. Í mínum huga er það dagljóst hvert innanlandsflugið á að fara: Það á að færast til Keflavíkur. Hér er þekking og reynsla í þessum málaflokki hvar sem á er litið, bæði tækni- og verkþekking, hér er aðstaða og kunnátta til að auka aðstöðuna og stækka, hér er landrými fyrir fleiri flugbrautir og aukna flugumferð. Keflavíkurflugvöllur er aðeins í 30 – 40 mínútna akstursfæri við höfuðborgina sem er örtími miðað við fjarlægðir helstu flugvalla við höfuðborgir nálægra landa. Í náinni framtíð má síðan sjá fyrir sér hraðlest á milli borgarinnar og flugvallarins – lest sem færi þessa vegalengd á enn skemmri tíma.

   Helstu rökin gegn því að innanlandsflugið færist til Keflavíkur eru þau að nauðsynlegt sé að hafa sjúkrahús í kallfæri við flugvöllinn. Þetta er réttmæt athugasemd. Á Hólmsheiði er ekkert sjúkrahús – eða ekki hef ég heyrt af því. En í Keflavík er sjúkrahús – reyndar merkilegt að það skuli enn fá að vera þar miðað við stjórnarhætti síðustu ríkisstjórna – þetta sjúkrahús á að hefja til vegs og virðingar með því að gera það í stakk búið til að framkvæma allar algengustu bráðaaðgerðir. En slík efling sjúkrahússins myndi koma til móts við kröfuna um sjúkrahús nærri flugvelli, og það myndi um leið efla alla faglega heilbrigðisstarfsemi á svæðinu og kalla á fleira starfsfólk á öllum sviðum sjúkrahúsrekstrar. Þar að auki væri slíkt sjúkrahús afar vel í stakk búið til að leggja fram þjónustu við heilsutengda ferðaþjónustu og síðast en ekki  síst veitti það aukið öryggi vegna alls þess flugs sem fer hér yfir á degi hverjum, en allir þekkja það að annað veifið lenda hér flugvélar með sjúka farþega sem þarf að setja af í snarhasti. Þá er ónefndur sá fengur sem væri af sjúkrahúsi af þessari gerð í tilfelli slysa eða náttúruhamfara en það er óvitlaust að hafa það í huga að eldgos á Reykjanesskaga gæti hæglega lokað þjóðleiðinni til Reykjavíkur á skömmum tíma.

   Það er mat mitt að vinna þurfi að samþættingu þessara tveggja verkefna, flugvallar og sjúkrahúss, leggja þau fram saman, þannig að öllum megi verða ljós sá ávinningur fyrir mannlíf hér á svæðinu sem hafa má af öflugra flugumhverfi og eflingu sjúkrahússins í Keflavík. En til að þetta geti orðið að veruleika þarf fólk sem ekki er bundið á klafa sérhagsmuna og flokkapólitíkur.

Ég undirritaður býðst til að fylgja þessu máli eftir – af festu. Fái ég til þess umboð frá kjósendum í komandi þingkosningum. Framboð Regnbogans er ekki framboð stjórnmálaflokks heldur framboð einstaklinga sem hafa ámóta lífssýn en jafnframt fullt frelsi til athafna óháð flokksmaskínu sem ræður og forgangsraðar – oftast af þjónkun við fjársterka sérhagsmunahópa eða misvitra embættismenn. Ég skora á ykkur Suðurnesjamenn að velja viljann til frjálsra athafna í eigin landi – í ykkar kjördæmi!

Guðmundur Brynjólfsson,
rithöfundur og djákni,

skipar 2. sæti á lista Regnbogans í Suðurkjördæmi.