Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Nokkur sæti laus á eflingarnámskeið fyrir  konur á Suðurnesjum
Mánudagur 16. apríl 2007 kl. 12:56

Nokkur sæti laus á eflingarnámskeið fyrir konur á Suðurnesjum

Ennþá eru örfá sæti laus á eflingarnámskeið fyrir konur á Suðurnesjum sem haldið er dagana 17. og 18. apríl nk. verður boðið upp á. Námskeiðið er ætlað konum 25 ára og eldri og ber yfirskriftina Ertu að njóta þín til fulls? Námskeiðið er haldið í kjölfar fjölda áskorana eftir að námskeiðið Viltu virkja leiðtogann í þér? var haldið í fyrra.  

Þær konur sem hafa áhuga á þátttöku eru hvattar til að skrá sig strax því fjöldi á námskeiðið er takmarkaður.  Hægt er að skrá sig með því að senda upplýsingar um nafn, kennitölu og síma á netfangið [email protected] eða með því að hringja í Magneu í síma 660-8805, Helgu í síma 894-6723 og Björk í síma 893-8306 á milli kl. 17 og 19.  Þátttökugjald er kr. 2.500.

Námskeiðið verður haldið í Golfskálanum í Leiru 17. og 18. apríl nk. frá kl. 19:30-22:30. Námskeiðinu lýkur svo með léttum veitingum og lokahátíð í Golfskálanum að loknum fyrirlestrum þann 18. apríl.
Það eru sjálfstæðiskonur í Reykjanesbæ sem standa fyrir námskeiðinu, en það er opið öllum konum á Suðurnesjum eldri  en 25 ára. Markmið námskeiðsins er að konur fái tækifæri til að efla sig og styrkja tengslanet sitt til virkari þátttöku í leik og starfi.  Meðal þess sem fjallað verður um á námskeiðinu er máttur jákvæðs hugarfars, að taka af skarið og söðla um, möguleikar kvenna í námi og starfi, áhrif góðrar heilsu á lífsgæði ofl.  Meðal þeirra sem miðla þátttakendum af þekkingu sinni og reynslu eru:
Edda Björgvinsdóttir, leikkona
Guðjón Bergmann, yogakennari
Runólfur Ágústsson, fyrrv. Háskólarektor
Björk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar
Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, stundar meistaranám í Lýðheilsufræði við Háskólann í  Reykjavík

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024