HSS
HSS

Aðsent

Niðurskurður í Grindavík
Mánudagur 7. febrúar 2011 kl. 14:40

Niðurskurður í Grindavík

Það er ljóst að skera þarf niður og spara í fjármálum Grindavíkurbæjar og sýna aðhald í fjármálum. Stofnanir bæjarins hafa undanfarið komið með hugmyndir hvernig þeir geta sparað um 5% á sínum vinnustað og veit ég að flestar ef ekki allar hafa gert það. Nú er komið í ljós að meira þarf að spara til, svo að ekki verði gengið á hitaveitusjóðinn og stefnan er að því mér skilst að á næsta ári eigi einungis að nota 50% af vöxtum hitaveitusjóðsins til rekstur bæjarins og árið þar á eftir ekkert af vöxtunum, heldur nýta þá „til að gera eitthvað skemmtilegt“ eins og oddviti framsóknar orðaði það svo skemmtilega. Gaman, gaman!


Það er kreppa í blessuðu landinu okkar og þeim fjölgar hratt sem eru í miklum vandræðum með að eiga í sig og á. Alls staðar er verið að spara og draga saman. Það ætlum við líka að gera hér. Við ætlum að segja upp fólki á stofnunum bæjarins, fólki sem flest er í illa launuðum störfum einsog t.d. á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, gangavörðum í skólanum o.sv.fr.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Jú, það er hallarekstur á bæjarsjóð og ekki má snerta hitaveitusjóðinn sem hefur minnkað og þetta bara verður að gera. Hmmmm..... En verður að gera það? Akkúrat núna í miðri kreppu? Jebb, við verðum að líta til framtíðar og passa okkur á að míga ekki í eigin skó og sýna aðhald og ábyrgð í fjármálum. En hvað með fólkið sem þegar hefur það skítt og sumir hverjir fá uppsagnarbréf? Jú, við vissum að þetta yrði ekki sársaukalaust, en nú verðum við að vera sterk og halda sjó. Ábyrgð og aðhaldssemi er það sem nú þarf. En, en... það eru til peningar? Þá peninga getum við ekki snert. Þá þurfum við að eiga til framtíðar og verðum að passa að höfuðstóllinn skerðist ekki frekar. Við þurfum að hugsa um börnin okkar og hafa skýra framtíðarsýn.


Persónulega þá finnst mér það sem hér er að gerast í niðurskurði að hluta til skynsamlegt, að hluta til glórulaust. Ég skil mjög vel að það sé sparað og litið til allra kostnaðarþátta og finnst það sjálfsagt að sýna aðhald og ábyrgð í rekstri. En að fara að segja upp fólki akkúrat núna þegar kreppan er sem verst finnst mér hrein og klár mannvonska og ólýsanlega óábyrgt. Að sýna bæjarbúum fingurinn á þennan hátt meðan það er til sjóður sem ef ekki má nota nú í kreppunni, hvenær má þá nota þessa peninga? Þegar aftur er komið 2007!? Nei, trúlega aldrei. Við þurfum að „passa höfuðstólinn“.


Persónulega finnst mér þetta svipað og ef togari væri að sökkva fyrir utan Grindavík og það bærist neyðarkall frá honum. Annar bátur er í nánd þar sem hann er á útleið til veiða. Þeim berast boð um bát í háska, 11 manns eru í sjónum. Skipstjóri og útgerðarmaður bátsins tala saman og komast að þeirri niðurstöðu að því miður geti þeir ekki komið til hjálpar þar sem þeir þurfi að sýna aðhaldssemi og ábyrgð í rekstri og hafi ekki efni á að eyða olíu til að sigla til þeirra og bjarga þeim. Þeir verði að halda til veiða þar sem þeir eru að afla tekna fyrir þjóðina og þeir þurfi að hugsa um framtíð barnanna. En hvað? Eiga mennirnir í sjónum þá bara að drukkna? Ég veit að þetta er ekki sársaukalaust en því miður, þá er þetta bara svona, segir skipstjórinn. Og hann bætir við; við þurfum að sýna ábyrgð og aðhaldssemi, óráðsían er búin að vera of mikil hjá útgerðinni. Þið verðið bara að skilja það. Já en þið eigið heilt olíufélag og nóg af olíu. Meira að segja milljarða inná bankabók!?!? Skipstjórinn svarar aftur; Það er einmitt málið, við verðum að standa vörð um þá sjóði. Þeir hafa rýrnað mjög á undanförnum árum og nú verðum við að stoppa í gatið. Því miður. Þið verðið bara að reyna að halda sjó og vona að þið lifið af.


Ætlar bæjarstjórn virkilega að fara að segja upp fólki í miðri kreppu, þegar ástandið er hvað verst á landsvísu, þegar peningar eru til? Af hverju má ekki bíða með það t.d. í eitt eða tvö ár eða þar til það versta er afstaðið? Af því það þarf að passa höfuðstólinn?


Ég trúi því varla að bæjaryfirvöld séu svo firrt og uppfull af glórulausum tillögum, þ.e. að segja upp láglaunafólki á síðustu og verstu tímum af því að „það má ekki snerta höfuðstólinn“ .


Ég trúi því ekki að bæjaryfirvöld séu reiðubúin að sýna bæjarbúum fingurinn á þennan máta og feta í fótspor útrásarvíkinga þar sem fólk skiptir ekki máli, bara peningar og beyta fyrir sig einhverju pólítísku kjaftæði um ábyrga fjármálastjórn og að við verðum að hugsa til framtíðar. Ef áhöfnin á sökkvandi bát er í sjónum þá einfaldlega gerum við það sem þarf til að bjarga henni...eða hvað?


Mér verður hugsað til Norðmanna en stjórnvöld þar hafa um áratuga skeið stundað það að spara og draga saman í framkvæmdum og útgjöldum þegar vel árar, en nota sjóði sína þegar kreppir að. Þeir seru skynamir og hugsa um sína þegna. Þar er ýmislegt sem við gætum tekið okkur til fyrirmyndar.


Ég óska þess innilega að bæjaryfirvöld sýni af sér þann manndóm og þá dómgreind að segja ekki upp fólki hér upp í stórum stíl mitt í kreppunni. Ég treysti því og trúi að þau sýni ekki af sér þá mannvonsku og mannfyrirlitningu að láta áhöfn sökkvandi skips drukkna þegjandi og hljóðalust, í þágu peninga. Það er nóg komið af því á Íslandi.

Halldór Lárusson
Tónlistarmaður og tónlistarkennari
Grindavík