Nettenging og talsími til útlanda liggur niðri
Rúmlega sex í morgun kom upp alvarleg bilun í ljósleiðaranum CANTAT3 með þeim afleiðingum að nánast allt samband við útlönd datt niður. Internetsamband við útlönd liggur niðri. Verið er að kanna hvort um bilun í streng sé að ræða eða hvort strengurinn sé slitinn. Síminn er með takmarkaða talsímaumferð í gegnum gervihnött, en afköstin eru miklu mun minni. Símasamband við útlönd mun því ganga erfiðlega áfram eftir morgni. Í undirbúningi er nú að flytja öll sæstrengssambönd yfir á gervihnött.
Internetsímaumferð við útlönd liggur nú alveg niðri. Öll sambönd sem eru á strengnum liggur niðri, bæði hérlendis og erlendis og hefur þannig m.a. áhrif á samband Íslendinga, Breta, Þjóðverja og Færeyinga við umheiminn.
Bilunin hefur engin áhrif á símasamband innanlands.
Þá er bara að njóta dagsins á www.vf.is!