Netkönnun Vf.is: Helmingur vill DD framboð Kristjáns Pálssonar
Tæplega þúsund manns hafa kosið í netkönnun VF.is en spurt var hvort Kristján Pálsson ætti að fá að bjóða fram undir merkjum DD á vegum Sjálfstæðisflokksins. 50% vilja leyfa Kristjáni að bjóða fram undir merkjum DD en 50% eru á móti. „Menn sem hafa svona mikinn stuðning eins og fram kemur í þessari könnun eru allir vegir færir,“ sagði Kristján Pálsson í samtali við Víkurfréttir.