Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Náttúruvika á Reykjanesi kynnt
Þriðjudagur 27. apríl 2010 kl. 08:11

Náttúruvika á Reykjanesi kynnt


Kynningarfundur á Náttúruviku á Reykjanesi verður í Duushúsum Reykjanesbæ næstkomandi miðvikudag kl 18:00. Allir þeir sem áhuga hafa á að bjóða upp á dagskrárliði, veitingar, þjónustu og/eða eru með fyrirspurnir eru hvattir til að mæta.
Náttúruvikan er samstarfsverkefni sveitarfélaga á Suðurnesjum og styrkt af Menningarráði Suðurnesja. Menningarfulltrúar viðkomandi svæða ásamt sjf menningarmiðlun skipuleggja Náttúruvikuna.

Náttúruvikan er fyrir íbúa og gesti; Íslendinga og útlendinga. Viðfangsefnið eru ýmsir dagskrárliðir er kynna náttúru, sögu og menningu á Reykjanesi. s.s. gönguferðir , skoðunarferðir, hellaferðir, fjallgönguferðir, fjöruferðir, fjórhjólaferðir, reiðhjólaferðir, köfun, kajakaferðir, hestaferðir, hlaup, bátsferðir, fuglaskoðun,  plöntuskreytingar, myndasýningar, náttúrutengdar þjóðsögur o.m.fl.

Tilgangurinn með náttúruvikunni er að að þátttakendur læri að lesa í náttúruna og  njóta hennar í leik og starfi, að sameina starfskrafta og hvetja  aðila til eflingar ferðamennsku,  að fjölskyldan sameinist í þátttöku og að kynna land og þjóð

Fyrirhugað er að gefa út kynningarbækling með dagskrárliðum og auglýsingum. Bæklingur verður til dreifingar á upplýsingamiðstöðum ferðamála, sundstöðum og víðar. Kynning á Náttúruviku verður jafnframt  á vefsíðum og í öðrum fjölmiðlum. Kynningar á dagskrárliðum þurfa að vera stuttar, gefa góðar upplýsingar og tilbúnar í s.l. fyrir 1. júní. Hvatt er til þess að dagskrárliðir verði einnig í boði fyrir útlendinga. Reynt verður að hafa verð á kynningum í hófi. Nánari upplýsingar gefa menningarfulltrúar sveitarfélaganna og sjf menningarmiðlun.


Ljósmynd/elg

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024