Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Námskeið fyrir sykursjúka – skráning hefst á morgun
Þriðjudagur 25. september 2007 kl. 14:32

Námskeið fyrir sykursjúka – skráning hefst á morgun

Heilsugæsla Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er þessa dagana að undirbúa námskeið fyrir sykursjúka og maka þeirra eða aðstandenda. Námskeiðið verður haldið dagana 25. til 27. október nk. í Eldborg í Svartsengi. Fyrsti dagur skráningar á námskeiðið verður á morgun, miðvikudaginn 26. september.

Innifalið í námskeiðinu er gisting í tvær nætur, fullt fæði, fræðslufundir með hjúkrunarfræðingi, næringarráðgjafa, lækni, íþróttakennara og sálfræðingi. Verðið er 17.000 krónur og er miðað við tvo í herbergi.

Skráning á námskeiðið fer fram dagana 26., 27. og 28. september nk. í síma 422 0510 kl. 10:00 til 15:00.

Nánari upplýsingar gefur Sigrún Ólafsdóttir í síma 422 0570.

Með bestu kveðju,

Sigrún Ólafsdóttir
hjúkrunarframkvæmdastjóri,

Sigríður Eysteinsdóttir
næringarráðgjafi.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024